Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Það er náttúrlega alrangt hjá hv. þingmanni að gefa eitthvað annað í skyn en að ríkisstjórnin hafi ekki staðið að uppbyggingu ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu. En þessi málflutningur kemur ekkert á óvart miðað við hvernig hv. þingmaður hefur snúið öllum sínum málflutningi á haus í þeirri umræðu sem hér um ræðir. Talar um eilífan niðurskurð í hinum og þessum málum þó verið sé að verja auknum fjármunum til viðkomandi starfsemi. Við getum talað um þekkingarsetur Þingeyinga. Það er ekki gömul stofnun og mjög mikilvægt að hún byggist upp áfram. Við höfum staðið að hvalasafni á Húsavík. Ferðaþjónustan er mjög mikilvægur þáttur í atvinnulífi Húsvíkinga. En síðan þegar menn tala um að líta eigi líka til einhverra annarra þátta, eins og nýsköpunar eða uppbyggingu stóriðju jafnvel, sem er skammaryrði í eyrum Vinstri grænna, þá koma menn og öskra úr ræðustól Alþingis eins og þeir séu á útifundi. Það má ekki tala um neitt annað en ferðaþjónustu svo ágæt sem hún er. En við þurfum fleiri undirstöður fyrir þessi byggðarlög.