Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður svaraði ekki spurningu minni hvor leiðin væri vænlegri, að fella niður leikskólagjöld eða lækka matarskattinn. Ég ætla ekki að gera hv. þingmanni upp skoðanir í þeim efnum. En ég held að sú leið að afnema leikskólagjöld og skila þeim beint í vasa foreldra barnanna muni skila sér betur en að láta einhvern þriðja aðila sjá um framkvæmd á hinni skattalækkuninni. Það er a.m.k. skoðun mín á því máli. Ég veit því ekki hvort okkur hv. þingmann greinir á.
Hins vegar er það svo að við getum ekki endalaust farið út í skattalækkanir. Við verðum að standa vörð um samhjálpina í samfélaginu. Það hefur verið þverpólitísk sátt um að við höldum samhjálpinni og höldum uppi öflugu velferðarkerfi hér á landi. Ef við ætlum að fara í að lækka matarskattinn, leikskólagjöld og annað slíkt og gera bara alla hluti í einu, er alveg ljóst að það mundi bitna á velferðarkerfinu og það er ekki stefna Framsóknarflokksins.