132. löggjafarþing — 36. fundur,  7. des. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[13:55]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Frú forseti. Nemendur og kennarar í tónlistarskólunum eru í óvissu um framtíð tónlistarnáms. Ekki er vitað með hvaða hætti því verður fyrir komið á næstu missirum. Starfshópur sem um málið fjallaði virðist ekki geta komið sér saman um niðurstöðu og á meðan blæðir tónlistarnáminu, tónlistarskólunum.

Hversu margir upprennandi listamenn eiga eftir að líða fyrir þetta ástand? Að okkar mati í Vinstri grænum: Of margir, frú forseti. Þess vegna flytjum við þá tillögu sem hér kemur nú til atkvæða og gerir ráð fyrir því að tónlistarnám á framhaldsskólastigi verði styrkt sérstaklega um 40 millj. kr. Ég segi já.