Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Hér leggur stjórnarandstaðan til að auka við fjárveitingar til framhaldsskólanna almennt um 250 milljónir. Það er ekki vanþörf á að slíkt sé gert og um það má greinilega lesa í bréfi frá Félagi framhaldsskólakennara sem við fengum fyrir örfáum dögum en þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Stjórn Félags framhaldsskólakennara gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vanáætla gróflega og árvisst fjárveitingar til framhaldsskólanna hvað varðar nemendafjölda og heildarfjárþörf.“
Þetta ætti að vera nægilega skýr vísbending fyrir ríkisstjórnina til að lagfæra þessi mál en svo virðist ekki vera miðað við atkvæðagreiðslur á töflunni hér.