132. löggjafarþing — 36. fundur,  7. des. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[14:21]
Hlusta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Sú tillaga sem hér er flutt lætur ekki mikið yfir sér, er tiltölulega lítil tillaga, felur í sér lítinn útgjaldaauka, felur í sér að eyrnamerkt er fé til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Þessi tillaga er lítil eins og ég sagði og lætur ekki mikið yfir sér en varpar skýru ljósi á eðli og vinnubrögð þessarar ríkisstjórnar.

Þegar fjárlögin voru afgreidd í fyrra var talað um að hér væri um formbreytingu að ræða en ekki efnisbreytingu. Það voru blekkingar, það var staðið svona að málum til þess eins til að refsa Mannréttindaskrifstofu Íslands, til að refsa henni, vegna þess að þeir fjármunir sem fóru inn hjá utanríkisráðuneytinu hafa ekki verið nýttir til mannréttindamála. Þeir hafa ekki verið nýttir, þær 4 millj., aðeins 800 þús. af þeim hafa verið nýttar til mannréttindamála. Það er verið að skera niður á mannréttindamálum, það er verið að refsa þeim aðilum sem tala með öðrum hætti en ríkisstjórnin vill.

Hér fylgjum við þessu máli aftur eftir og við munum fylgja því fast eftir áfram að þessir fjármunir komi.