132. löggjafarþing — 36. fundur,  7. des. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[14:26]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um tillögu sem snýr að örorkulífeyri. Við teljum að leitast eigi við að standa við alla samninga sem gerðir hafa verið að þessu leyti og að klára eigi þetta mál á hv. Alþingi. Ég held að ekki þurfi að hafa fleiri orð um það og því greiðum við málinu atkvæði.