Fjárlög 2006.
Frú forseti. Eins og ég gerði grein fyrir áðan tel ég að þessi varatillaga sem við greiðum atkvæði um sé á mörkum þess að vera þingleg við 3. umr. um fjárlög. Hún er engu að síður tilraun flutningsmanns til að slá sig til riddara með ómerkilegum og ósmekklegum hætti.
Hv. flutningsmaður tillögunnar veit ósköp vel að sambærileg tillaga er til meðferðar, málefnalegrar og þinglegrar meðferðar, í menntamálanefnd (Gripið fram í.) og tillagan verður afgreidd frá nefndinni (Gripið fram í: Nú?) eftir þinglega, málefnalega, eðlilega og efnislega meðferð í nefndinni. (Gripið fram í.)
Ég man eftir því að hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson hefur margoft kvartað yfir því á Alþingi að stjórnarflokkarnir stæðu ekki málefnalega, þinglega og efnislega að meðferð þingmála. Tillaga hans er sú að svo verði ekki gert (Forseti hringir.) í þetta skipti en það ætlum við að gera. Ég segi nei, herra forseti, og lýsi furðu minni yfir því að tillagan komi fram með þessum hætti.