132. löggjafarþing — 37. fundur,  7. des. 2005.

Aðgangur að opinberum háskólum.

114. mál
[15:52]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. 1000 umsækjendum í íslenska opinbera háskóla var með einum eða öðrum hætti synjað um skólavist á liðnu hausti. Sérstaklega vekur athygli og er undirstrikað að Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands eru hættir að nota þá undanþáguheimild sem þeir hafa til að taka inn aðra nemendur en þá sem eru með formleg stúdentspróf. Þetta er afskaplega slæm breyting og hlýtur að mega túlka sem svo að verið sé að reisa hindranir fyrir fullorðið fólk sem vill snúa aftur til náms inn í háskólana og njóta tækifæra í þeirri menntasókn sem nú stendur yfir og er svo mikilvægt að eigi sér stað á Íslandi. 1000 manns er hafnað og það er alvarlegt mál að sú staða sé komin upp í þessum skólum. Helmingurinn er í Kennaraháskóla Íslands. Það má örugglega færa rök fyrir því að veruleg þörf er á fræðslumenntuðu fólki sem nýtist hér og hvar í þjóðlífinu og til að efla skólana. En upp úr stendur að Háskólinn á Akureyri sem áður beitti undanþáguheimildinni nokkuð ríkulega gerir það ekki lengur en þeir tóku inn aðra en þá sem voru með formleg stúdentspróf. Það var eitt af merkustu flöggum skólans að efla nám á landsbyggðinni og gefa fullorðnu fólki með einn, tvo eða þrjá vetur að baki framhaldsskólanna, ekki með formlegt stúdentspróf en með mikla starfs- og lífsreynslu á öðrum vettvangi, færi á að komast í háskólanám án þess að fara fyrst inn í framhaldsskólana og ljúka formlegu stúdentsprófi sem er alger óþarfi í því tilfelli og ég held að flestir séu sammála um það.

En skólarnir grípa til þessara örþrifaráða að vísa því fólki frá sem ekki er með formlegt stúdentspróf og upp úr þessu stendur að nú í haust fengu 1000 Íslendingar ekki inni í því háskólanámi sem þeir sóttu um. Það er grafalvarlegt mál og því verður að breyta og hlýtur að liggja allri endurskoðun, fjármögnun og framtíðarmarkmiðum háskólastigsins til algers grundvallar.