132. löggjafarþing — 37. fundur,  7. des. 2005.

Raunfærnimat.

214. mál
[16:15]
Hlusta

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Það er eins og tveir hæstv. menntamálaráðherrar séu í landinu, annars vegar sá sem kom rétt áðan og talaði vel um raunfærnimatið og hins vegar sá sem með nokkrum reigingi taldi að fólk með stúdentspróf ætti ekkert erindi í háskóla og kom þar með í veg fyrir að háskólarnir sjálfir framkvæmdu það raunfærnimat sem hinn síðari menntamálaráðherra talaði um.

Um leið og ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir fyrirspurn sína og verkalýðshreyfingunni og samtökum atvinnurekenda fyrir að hafa beitt sér fyrir þessu máli, þá er það auðvitað svo að þetta er kannski það sem við þurfum allra mest á að halda í menntakerfi okkar í tengslum við starfs- og verknám. Við stöndum frammi fyrir því, og þær tölur hafa ekkert breyst, að 40% af vinnumarkaðnum eru með grunnmenntun og aðeins 60% með einhverja meiri menntun og þó að árin líði breytist þetta hlutfall ekki, sem bendir til þess að við séum að ganga inn í nýtt stéttskipt upplýsingasamfélag þar sem munurinn er menntun og ekki menntun í staðinn fyrir fyrri mun. Við þurfum að einbeita okkur sérstaklega að þessu og raunfærnimatið getur verið leið í þá átt. Ég vona að hæstv. menntamálaráðherra beri gæfu til að fylgja (Forseti hringir.) okkur hinum í því máli.