132. löggjafarþing — 37. fundur,  7. des. 2005.

Raunfærnimat.

214. mál
[16:19]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Anna Kristín Gunnarsdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæt svör. Það kom margt jákvætt fram í svari hæstv. ráðherra, t.d. það að reiknað er með að raunfærnimatskerfið verði hluti af hinu íslenska skólakerfi, sem er ákaflega mikilvægt, því að eins og ég kom að í ræðu minni fyrr veit ég að það gætir ákveðinnar tregðu t.d. innan framhaldsskólanna að meta óhefðbundið nám og fyrra nám þeirra sem sækja vilja um inngöngu þar. Mér er kunnugt um dæmi þar sem framhaldsskóli vildi ekki meta ákveðið próf í áfanga úr framhaldsskóla vegna þess hve langt var síðan sá áfangi var tekinn og hélt því fram að það væri ekki lengur í gildi, sem er auðvitað della.

Það kom líka fram í máli ráðherrans hvernig unnið er að þessu núna og það kom í ljós að loksins er vinnan við þetta mat orðin markviss eftir að hún fór úr ráðuneytinu og í hendur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins en þar er unnið af virkilegri fagmennsku að málinu.

Hins vegar er leitt að heyra að ekki er reiknað með að matið verði komið í gagnið fyrr en eftir 3–5 ár og svo vona ég að ekki verði settur hemill á málið með því að setja ekki nóg fjármagn í það. Eins og kom fram í máli manna áðan er þetta sérstaklega mikilvægt fyrir þá einstaklinga sem hafa stysta skólagöngu. Ég er hér með nýtt svar frá forsætisráðherra sem upplýsir að á landsbyggðinni eru 45% á aldrinum 20–40 ára með grunnskólapróf sem síðasta próf en á höfuðborgarsvæðinu eru þeir 27,5%. Þessu fólki þarf að þjóna (Forseti hringir.) og þar er raunfærnimatið stór og mikilvægur hlutur.