132. löggjafarþing — 37. fundur,  7. des. 2005.

Fræðsla í Kennaraháskóla Íslands um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

215. mál
[16:34]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu og hv. þingmanni og fyrirspyrjanda að vekja máls á þessu atriði sem nauðsynlegt er að ræða innan menntakerfisins sem og alls samfélagsins eins og hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir kom inn á. Það skiptir máli að við séum öll vakandi, séum öll meðvituð og reynum að nálgast þetta efni á varfærinn en samt opinskáan hátt. Við eigum að þora að ræða þessi mál og þá ekki síst þeir góðu fagaðilar sem eru starfandi innan menntakerfisins. Mér sýnist á öllu að þeir sem stjórna Kennaraháskólanum séu afar meðvitaðir um ábyrgð sína varðandi þá fræðslu sem þeir veita nemendum sínum. Þeir eru að taka á þessu og mér sýnist þeir frekar vera að bæta í en hitt.

Ég ítreka það sem ég sagði áðan. Ég treysti bæði þeim kennurum sem eru við háskólana, Kennaraháskólann og aðrar menntastofnanir sem bjóða upp á kennaramenntun sem og þeim kennurum sem starfa almennt innan leikskólans og grunnskólans. En ég tel rétt að allar sveitarstjórnir og fræðsluskrifstofur viðkomandi sveitarfélaga fari yfir þessi mál og haldi fundi með kennurum sínum. Ég er alveg sammála hv. þingmanni. Við eigum ekki að tala um stór, mikil og dýr endurmenntunarnámskeið heldur að fræðslan sé veitt og menn séu meðvitaðir um svona tilvik, hugsanleg tilvik í öllum störfum sínum innan fræðslu- og menntakerfisins. Það er brýnt að ræða þetta og ég þakka fyrirspyrjanda enn og aftur fyrir fyrirspurnina.