Réttur nemenda í framhalds- og háskólanámi til húsaleigubóta.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég fagna sérstaklega orðum hæstv. félagsmálaráðherra um að finna sem fyrst lausn á þessu brýna hagsmunamáli nema. Ég trúi ekki öðru en að það takist fljótlega.
Það er auðvitað þannig að með stækkandi sveitarfélögum er annað ómögulegt en að nemar standi jafnfætis í þessu máli. Það sýnir auðvitað hæstv. ráðherra með framgöngu sinni núna, að verið er að finna lausn á þessu máli. Væntanlega munu sveitarfélög halda áfram að sameinast. Ég get nefnt sem dæmi að fyrir austan, heima hjá mér þar sem sameining var ákveðin, ætti nemi á Stöðvarfirði ekki að fá þessar bætur ef hann færi í Verkmenntaskólann í Neskaupstað en hins vegar ef hann færi í Menntaskólann á Egilsstöðum. Það sjá náttúrlega allir að þetta hefur áhrif á nemana og slík misbeiting er ekki af hinu góða.
Ég trúi því og treysti að við náum að landa þessu máli fljótlega.