132. löggjafarþing — 37. fundur,  7. des. 2005.

Hvalnes- og Þvottárskriður.

228. mál
[17:04]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Dagnýju Jónsdóttur fyrir að gefa mér tækifæri til að svara þeirri fyrirspurn sem hún leggur fram og fjallar um Hvalnes- og Þvottárskriður, en þingmaðurinn spyr:

„Til hvaða ráðstafana hyggst ráðherra grípa vegna stórvaxandi hættu fyrir vegfarendur um Hvalnes- og Þvottárskriður?“

Svar mitt er svohljóðandi: Undanfarið ár hefur verið mikið um stórrigningar á Austurlandi, og raunar mörg undanfarandi ár, sem víða hafa valdið skriðuföllum og oft í framhaldi valdið stórskemmdum. Þetta á ekki síst við í Hvalnes- og Þvottárskriðum en þar hafa aðstæður farið versnandi síðustu árin vegna vaxandi grjóthruns og aurskriðna. Í snjóþungum vetrum geta einnig fallið snjóflóð í skriðunum þótt lítið hafi verið um það undanfarna vetur.

Hámarki náðu skemmdir á veginum um skriðurnar í miklum rigningum nú í haust þegar stórt skarð kom í veginn um Þvottárskriður samfara miklum aurskriðum og grjóthruni. Við slíkar aðstæður getur vissulega skapast mikil hætta fyrir vegfarendur auk þess sem vegagerðarmenn vinna þarna oft við erfiðar og í raun hættulegar aðstæður bæði við að sinna þjónustu og eins að aðstoða vegfarendur.

Stefnt er að því að vegurinn um skriðurnar verði endurbyggður á næstu árum og eru 207 millj. kr. ætlaðar í það verkefni á árinu 2007. Líklegt er þó að til að ljúka endurbyggingu vegarins í báðum skriðunum þurfi a.m.k. 500 millj. kr. Miðað er við að gerð vegarins verði svipuð og í Kambaskriðum, þ.e. tiltölulega breið rás verði fjallmegin við veginn og kantvörn með netkössum þar sem þörf er á til að varna því að grjót berist inn á veginn. Þetta eru lausnir sem eru þekktar og hafa víða gefist vel.

Að undanförnu hafa heyrst raddir um að fremur eigi að gera jarðgöng undir Lónsheiði en endurbyggja veginn um skriðurnar. Eðlilegt er að slíkar raddir heyrist miðað við lélegt ástand vegarins sem nú er um skriðurnar. Jarðgöng undir Lónsheiði yrðu sennilega rúmlega 5,5 km á lengd og vegagerð alls um 13 km til viðbótar. Kostnaður yrði sennilega nálægt 4 milljörðum kr. og stytting hringvegarins um 12 km. Þetta er varanleg og góð lausn en kostnaðarsöm engu að síður, en þessi kostur kemur að mínu mati til álita þegar við leggjum á ráðin um enn frekari aðgerðir um endurbætur og úrbótaaðgerðir á þjóðvegakerfinu og ekki síst með tilliti til þess að stytta leiðir eins og í þessu tilviki yrði gert þar sem þarna yrði um 12 km stytting með jarðgöngum.

Ég tel alveg einsýnt og nánast liggja fyrir að við munum taka þetta verkefni upp við endurskoðun á samgönguáætluninni sem er nú þegar hafin. Við gerum ráð fyrir að langtímaáætlunin verði lögð fram endurskoðuð á hausti 2006 og fjögurra ára áætlun verði jafnframt eins og lög gera ráð fyrir til meðferðar og endurskoðunar hér í þinginu á haustinu 2006 og ársbyrjun 2007.

Engu að síður er ljóst að við verðum að leggja áherslu á frekari endurbætur á veginum um Hvalnes- og Þvottárskriður og við verðum að meta það, og það mun Vegagerðin gera, hversu mikið þarf að gera til þess að aðstæðurnar séu viðunandi og öryggið sé sem mest og að því verður unnið á næstu missirum.