Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Frú forseti. Ég er sammála hv. þm. Birki Jóni Jónssyni um það og ég og minn flokkur styðjum skynsamlega orkunýtingu en þar skilja hins vegar leiðir að við styðjum ekki óskynsamlega orkunýtingu. Við styðjum ekki virkjunarframkvæmdir sem eru hervirki og óréttlætanlegar í umhverfislegu eða efnahagslegu tilliti. Mér fannst formaður iðnaðarnefndar skauta svolítið léttilega yfir söguna þegar hann rakti aðdraganda þessa máls. Hann hefði mátt láta getið svolítið ítarlegar örlaganna sem biðu auðlindafrumvarpsins sem kom í fyrra og þessa holdgetna afkvæmis þess. Mér finnst hann heldur ekki alveg sanngjarn í garð þeirra sem stóðu að flutningi frumvarpsins í fyrravor í ljósi þeirra aðstæðna sem þá voru uppi í nefndinni. En átakanlegast er að heyra að formaður iðnaðarnefndar hefur engin svör við þeim mótsögnum sem liggja annars vegar í að ráðherra fái þetta bráðabirgðaleyfi til að úthluta rannsóknarleyfum með vilyrðum í nýtingarátt bara að eigin (Forseti hringir.) geðþótta en síðar eigi jafnframt að skipa nefnd til að útfæra leikreglur um hvernig gera eigi þetta í framtíðinni. (Forseti hringir.)