132. löggjafarþing — 38. fundur,  7. des. 2005.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[17:45]
Hlusta

Frsm. minni hluta iðnn. (Jóhann Ársælsson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég fékk í veganesti frá hæstv. ráðherra um leið og ég gekk í ræðustólinn að ég hlyti nú að samþykkja þetta allt saman. Það er kannski von að hæstv. ráðherra gefi mér það veganesti vegna forsögu málsins því við stóðum að tillögu iðnaðarnefndar hér í vor, en ég kem að því á eftir.

Ég er að mæla fyrir nefndaráliti um breytingu á lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, frá minni hluta iðnaðarnefndar.

Endurskoðun hins mikla og mikilvæga lagabálks vatnalaganna frá 1923 er að mati minni hlutans verkefni sem Alþingi verður að vanda til. Til þess að svo megi verða verður glögg heildaryfirsýn að fást á alla þá lagabálka sem eiga að taka við hlutverki vatnalaganna. Til að freista þess að skapa Alþingi tíma til að vinna að málum í þessum anda stóð minni hluti nefndarinnar að því að flytja með meiri hlutanum frumvarp sem ekki náðist að ljúka umfjöllun um á síðasta þingi en er að mestu samhljóða því frumvarpi sem hæstv. iðnaðarráðherra hefur nú lagt fram. Þessu frumvarpi er ætlað að skapa svigrúm til þess að vinna áfram að undirbúningi fyrirhugaðrar lagasetningar um rannsóknir og nýtingu á jarðrænum auðlindum. Áður en það mál getur komið til umfjöllunar á Alþingi þurfa að liggja fyrir niðurstöður í afar mikilvægu máli, þ.e. með hvaða hætti velja eigi milli þeirra sem sækjast eftir nýtingarrétti á auðlindum. Meiri hlutinn leggur til þá breytingu á frumvarpinu að skipa skuli þverpólitíska nefnd til að vinna að þeirri stefnumótun. Þessi tillaga var í því frumvarpi sem nefndin flutti á liðnu vori. Af einhverjum óútskýrðum ástæðum hefur ráðherra fellt tillöguna úr því frumvarpi sem nú liggur fyrir en það er þó að öðru leyti samhljóða frumvarpi nefndarinnar eins og áður sagði. — Hæstv. ráðherra mun kannski útskýra það fyrir okkur hér á eftir í umræðunni hvers vegna hún kaus að fella út þessa tillögu um nefndina. — Þessi tillaga var mikilvægur hluti málsins að mati minni hlutans og því ber að þakka meiri hlutanum fyrir að taka tillöguna upp aftur. Það er afar lýsandi fyrir vinnubrögð stjórnarmeirihlutans við endurskoðun þeirra lagabálka sem eiga að taka við af vatnalögunum frá 1923 að öll nefndin skuli sasmmála um að í þessu frumvarpi þurfi að vera ákvæði um endurskoðun á mjög mikilvægum grundvallarþætti málsins, þ.e. hvaða reglur eigi að gilda í framtíðinni um það hvernig valið verði milli þeirra sem sækjast eftir því að fá nýtingarrétt á auðlindum. Það að minni hlutinn tók þátt í að flytja frumvarp samhljóða þessu frumvarpi verður að skoða í því ljósi að það virtist eina færa leiðin til að koma í veg fyrir að ófullburða frumvarp um jarðrænar auðlindir yrði gert að lögum á síðasta vorþingi. Minni hlutinn harmar að ekki hefur verið fallist á þau sjónarmið hans að allir lagabálkarnir sem koma eiga í stað vatnalaga verði unnir í samhengi svo nauðsynleg yfirsýn fáist. Þetta sést á því að frumvarp til vatnalaga er nú endurflutt nánast óbreytt og því ætluð lögfesting á þessu þingi. Enn er ekki fram komið boðað frumvarp um vatnsvernd.

Sá galli er á því frumvarpi sem hér liggur fyrir að við lögfestingu þess tekur ákvæði 2. gr. frumvarpsins (5. gr. laganna) sem veitir ráðherra heimild til að veita vilyrði fyrir nýtingarleyfum í tengslum við útgáfu rannsóknarleyfa einnig til nýtingarleyfa hvað vatnsafl varðar. Í því samkeppnisumhverfi sem nú er að skapast í raforkuframleiðslu er nú þegar ljóst að kapphlaup er hafið hjá orkuframleiðslufyrirtækjum um auðlindir landsins. Kapphlaupið er að mati minni hlutans háð vegna þess að stjórnendur fyrirtækjanna telja að reglur sem settar verði um val á milli þeirra sem sækjast eftir nýtingarrétti á auðlindum verði íþyngjandi fyrir fyrirtækin. Þetta kann að vera rétt en ef svo er munu þeir sem hljóta náð fyrir augum iðnaðarráðherra í því millibilsástandi sem mun ríkja þar til fyrirhuguð lög taka gildi hafa forskot í samkeppninni við hina sem á eftir koma.

Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir stjórnvöld að það eru einmitt nýju aðilarnir, væntanlega aðallega einkafyrirtæki á markaðnum, sem eiga að tryggja þá samkeppni sem stjórnvöld segjast vilja skapa. Minni hlutanum hefur orðið þessi staða enn betur ljós á þeim tíma sem liðinn er frá því að málið var til umfjöllunar á síðasta þingi og nefndin fékk skýra staðfestingu á því sem hér hefur komið fram í viðræðum við forsvarsmenn orkufyrirtækja og embættismenn iðnaðarráðuneytisins við umfjöllun málsins. Af þessum ástæðum lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar og frjálslyndra fram þá breytingartillögu á fundi nefndarinnar að heimildarákvæðið sem ráðherra hefur skv. 5. gr. laganna verði numið úr gildi. Með þeirri ákvörðun kæmi ekki til kapphlaups á þeim forsendum sem fyrr er lýst vegna þess að allir sættu þá í framtíðinni sömu reglum eftir að ný lög um jarðrænar auðlindir öðlast gildi. Þessi breyting mundi ekki hamla í neinu veitingu leyfa til rannsókna og ekki heldur veitingu nýtingarleyfa á þeim tíma sem líður þar til endurskoðun laganna verður lokið. Það vakti þess vegna mikla undrun minni hlutans að meiri hlutinn hafnaði tillögunni og því telur hann sig knúinn til að flytja breytingartillögur við frumvarpið sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali.

Steingrímur J. Sigfússon áheyrnarfulltrúi er í aðalatriðum sammála þeim sjónarmiðum sem fram koma í þessu áliti minni hlutans og telur þá breytingartillögu sem þar er boðuð til bóta. Hann telur þó réttast að fresta afgreiðslu málsins með öllu og mun gera nánar grein fyrir ástæðum þess við umræðu um málið.

Hæstv. forseti. Það er auðvitað hægt að ræða margt um þessa endurskoðun vatnalaganna frá 1923 og ég mun gera það hér á eftir, en ég ætla fyrst að mæla fyrir þessari breytingartillögu sem minni hluti nefndarinnar flytur nú.

Hún orðast svo:

„1. Við 2. gr. Greinin orðist svo:

2. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:

Rannsóknarleyfi skal veitt einum aðila á hverju svæði. Þó er heimilt að veita fleiri en einum aðila slíkt leyfi sameiginlega hafi þeir staðið saman að rannsóknarleyfisumsókn og gert með sér samning um skiptingu rannsóknarkostnaðar.

2. Við 4. gr. Greinin orðist svo: Orðin „og forgangsréttartíma eins og hann er ákveðinn í 2. mgr. 5. gr“ í 1. mgr. 23. gr. laganna falla brott.“

Hæstv. forseti. Með þessu er gerð tilraun til þess að koma einhverju viti í það ástand sem er að skapast. Ég tel að það sé full ástæða til þess að vekja athygli á því að sjálfstæðismenn ættu hér töluvert erindi í salinn, því að mér finnst það með undarlegheitum að Sjálfstæðisflokkurinn, sem ævinlega talar fyrir því að einkaaðilar taki þátt í atvinnurekstri á Íslandi og hefur talað fjálglega um það samkeppnisumhverfi sem eigi að verða til á raforkumarkaðnum, skuli sætta sig við það umhverfi sem nú er verið að skapa á þessu sviði. Er það þannig að menn átti sig ekki á því hvernig ástandið er á raforkumarkaðnum á Íslandi?

Hverjir komu t.d. til nefndarinnar til að ræða við hana um þessa hluti? Það voru fulltrúar frá Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suðurnesja, Landsvirkjun og fulltrúar frá Rafmagnsveitum ríkisins. Hvað skyldu þessir aðilar eiga sameiginlegt? Jú, að fyrirtækin eru öll í opinberri eigu. Væntanlega hafa menn nú hugsað sér að einhverjir aðrir aðilar kæmu inn á þennan markað, inn í þá samkeppni sem talað hefur verið um að skapa á markaðnum.

Hverjir eru í kapphlaupinu um að merkja sér auðlindirnar? Við fengum lista í nefndinni yfir þá sem hafa sent inn umsóknir. Í fljótu bragði sýnist mér að af öllum þeim umsóknum sem nú liggja fyrir og hafa verið sendar inn að undanförnu séu einungis tveir aðilar sem ekki tilheyra þeim hópi sem ég las hér upp áðan, sem ekki eru hluti af þeim opinberu fyrirtækjum sem eru í raforkuframleiðslu á Íslandi.

Ég vil koma að þessu aftur því það er svo mikið umhugsunarefni hvernig stendur á því að menn sækjast eftir því og hæstv. ráðherra virðist sækjast eftir því að fá að hafa það hlutverk að úthluta vilyrði fyrir nýtingarleyfi ásamt rannsóknarleyfunum. Ég hefði haldið að hæstv. ráðherra ætti að vera guðsfegin að vera leyst undan þeim þrýstingi að þurfa að meta hvort þeir aðilar sem sækjast eftir rannsóknarleyfum eigi að fá nýtingarleyfin með. (Iðnrh.: Það er heimild.) Það er heimildarákvæði en hæstv. ráðherra þarf væntanlega að svara þeim sem sækjast eftir því að fá vilyrðið. Það fór ekkert á milli mála að þeir opinberu aðilar sem komu til nefndarinnar töldu það vera rétt sinn að fá það vilyrði og töldu ekki björgulegt að biðja um rannsóknarleyfi nema vilyrði fylgdi. Þá mætti velta því fyrir sér hvers vegna er verið að setja það í eina af greinum frumvarpsins að menn eigi að fá endurgreitt fyrir kostnað vegna rannsókna ef aðrir fái nýtingarleyfi.

Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst að þessi hluti málsins þurfi að fá góða umræðu og ég kalla eftir því að sjálfstæðismenn, sem alltaf segjast ganga fremstir í því að koma á samkeppni og frelsi á markaðnum, útskýri hvernig í ósköpunum stendur á því að þeir eru sáttir við að hæstv. ráðherra sé undir þá sök seld að þurfa að svara þeim sem vilja fá nýtingarleyfin með — og eigi að meta það. Mér fannst eiginlega hálfsorglegt að hlusta á hv. formann nefndarinnar þegar hann var spurður að því hvers vegna þessi nýtingarleyfi þyrftu að fylgja og fór að blanda því saman við það að umhverfismat þurfi að fara fram áður en nýtingarleyfi er veitt — blanda því saman við það sem skiptir þarna máli, að velja á milli þeirra sem fá nýtingarleyfi. Það mat hlýtur alltaf að þurfa að fara fram áður en nýtingarleyfinu er úthlutað. Ef hæstv. ráðherra úthlutar vilyrðinu með rannsóknarleyfinu verður matið á auðlindinni aldrei neitt. Eigi menn að láta verðmæti auðlindarinnar skipta einhverju máli, þegar ákveðið er hverjir eiga að fá að nýta hana, verður það að gerast þegar nýtingarleyfinu er úthlutað. Hafi menn fengið vilyrðið með rannsóknarleyfinu verður það til þess að menn borga ekkert fyrir auðlindina. Menn munu þá ekki keppa á eðlilegum grundvelli um þær auðlindir sem á að fara að nýta.

Það sem er þó kannski mest til skammar hvað þetta varðar er að menn skuli ekki vilja gera það sem þó er hægt að gera til að koma í veg fyrir þetta kapphlaup en það er að skera á tengsl rannsóknarleyfa og nýtingarleyfa þannig að ráðherra þurfi ekki að standa frammi fyrir óskum og kröfum þeirra sem vilja hefja rannsóknir um að fá nýtingarleyfið. Fyrir fram er ljóst að það mun þýða og hefur þýtt — menn hafa áttað sig á stöðunni — að menn sækja mjög fast eftir því að fá þessum rannsóknarleyfum úthlutað og vilja vilyrðin með. Þannig er það.

Hverjir eru svo sem að sækja um? Landsvirkjun er með umsóknir um rannsóknarleyfi, vatnasvið Skjálfandafljóts, vatnasvið Tungnár fyrir ofan Sigöldu, vatnasvið Þjórsár neðan Búrfells, vatnasvið efri hluta Skaftár, vatnasvið vestari og austari Jökulsár í Skagafirði, leitar- og rannsóknarleyfi í Brennisteinsfjöllum, leitar- og rannsóknarleyfi í Gjástykki og nágrenni. Þetta er bara Landsvirkjun sem ég var hér að lesa upp, opinbert fyrirtæki í eigu ríkisins og Akureyrarbæjar ásamt Reykjavíkurborg.

Hitaveita Suðurnesja er með umsókn um jarðhitaleit á Reykjanesskaganum. Orkuveita Reykjavíkur, háhitasvæðin í Reykjadölum, í Rangárþingi ytra og háhitasvæði í Kerlingarfjöllum. Síðan eru Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja sameiginlega með umsókn um háhitasvæði í Brennisteinsfjöllum.

Rarik sækist eftir því að rannsaka vatnasvið Hólmsár í Skaftárhreppi. Síðan er hér eitthvert fyrirtæki sem heitir Héraðsvötn hf. Það sækist eftir því að rannsaka vatnasvið austari og vestari Jökulsár í Skagafirði. Annað fyrirtæki, Þeistareykir ehf., sækist eftir því að skoða virkjanir í Skjálfandafljóti. Tvö síðastnefndu fyrirtækin eru þau einu sem ekki eru í eigu hins opinbera af þeim hópi sem ég las hér upp áðan.

Það er ekki allt búið með Landsvirkjun því að hún sækist eftir aukinni raforkunýtingu á Kröflusvæðinu. Orkuveita Reykjavíkur sækist eftir stækkun Hellisheiðarvirkjunar upp í 160 megavött og virkjunarleyfi í Farinu í Bláskógabyggð. Hitaveita Suðurnesja sækist eftir virkjunarleyfi fyrir 100 megavatta virkjun, Reykjanesvirkjun. Orkubú Vestfjarða — eitt nafnið enn — hver skyldi nú eiga það? Tungudalsvirkjun í Skutulsfirði.

Ég les þetta hér upp til að reyna að benda mönnum á hvers konar samkeppnisumhverfi verið er að skapa, hvers konar samkeppnisumhverfi verður til ef hæstv. ráðherra notar hið valkvæða ákvæði um að láta nýtingarleyfin fylgja rannsóknarleyfunum. Hvaða aðstaða verður það fyrir einkafyrirtækin, sem Sjálfstæðisflokkurinn heldur svo mikið upp á, og vill að taki þátt í samkeppninni, að koma svo inn á eftir þegar búið er að úthluta þessum aðilum öllu saman? Fara að keppa eftir að búið er að setja einhverjar reglur sem eiga að þýða það að menn geti valið á milli aðila á jafnræðisgrundvelli sem getur þýtt samkvæmt tillögum auðlindanefndar a.m.k — auðlindanefnd var sett á fót með miklu brambolti á sínum tíma. Hún vann mjög mikið starf, mjög gott starf að mörgu leyti, og menn eiga ekki að henda þeim niðurstöðum, af og frá. Menn eiga auðvitað að nota þær niðurstöður núna og hafa þær í huga þegar búnar eru til reglur um val á milli þeirra aðila sem fá að nýta auðlindir landsins. Hvað skyldi auðlindanefnd hafa lagt til hvað þetta varðar? Hún lagði til að að öllu jöfnu færi fram uppboð milli þeirra aðila sem þyrfti að velja á milli til að nýta slíkar auðlindir landsins. (Gripið fram í: ... á því.) (Gripið fram í: … kommúnismi.) Eftir að menn væru búnir að pissa á allar þúfurnar kæmu einhverjir nýir aðilar inn á markaðinn til að keppa við þá sem eru búnir að fá öll þessi leyfi og fengju að taka þátt í uppboðinu á móti þeim sem væru fyrir á markaðnum. Hverjir eru það nú? (Gripið fram í: … sjávarútveginn?) Það eru opinberu aðilarnir í heilu lagi. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að vera óskaplega ánægður með þetta. Þetta er fína samkeppnisaðstaðan sem verið er að búa til. (Gripið fram í: … á sunnudögum.)

Það er athyglisvert að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ganga undir þetta jarðarmen, að geta ekki einu sinni gengið í lið með þessari litlu tillögu, að taka þetta valkvæða ákvæði af ráðherranum, taka frá honum þann vanda sem hann er í, þann þrýsting sem verður á hann að úthluta þessum leyfum, af því að það er engin þörf á því. Það er hægt að úthluta rannsóknarleyfunum, ekkert mál, og það er hægt að úthluta virkjunarleyfunum á þeim tíma sem það tekur að skapa þessar reglur og það er ekkert sem kemur í veg fyrir að ráðherrann geti gert það. Hafi menn lokið rannsóknarferlinu og sæki um virkjunarleyfi getur ráðherrann fjallað um það atriði og gengið frá því með þeim hætti sem hefur verið gert fram að þessu.

Hvers vegna vilja menn þá endilega að ráðherrann hafi þetta vald núna og vilja endilega að hann fái þetta viðbótarvald gagnvart vatnsaflsvirkjunum í landinu? Það er svolítið merkilegt. Full ástæða er til að halda að það sé vegna þess að það standi til að úthluta rannsóknarleyfum ásamt vilyrði um virkjunarleyfi á næstunni út á þær umsóknir sem ég var að lesa upp og snúast um það að virkja vatnsafl á Íslandi. Og stundum er það nú þannig að það dettur eitthvað út úr fólki. Það datt út úr hv. formanni nefndarinnar að heimamenn biðu ... (Gripið fram í: Það skiptir nú ekki máli.) Hæstv. forseti. Ég er bara að rifja upp það sem datt út úr hv. formanni nefndarinnar við umræðuna um daginn, að heimamenn biðu eftir því að fá að taka að sér að rannsaka þessa hluti. Hv. þingmaður sagðist hafa mismælt sig og það kann vel að vera og menn eiga auðvitað leiðréttingu orða sinna. Ég óska eftir því að það verði útskýrt fyrir mér til hvers hæstv. ráðherra þarf að hafa þetta vald gagnvart vatnsaflsvirkjununum. Ég óska eftir því að það verði útskýrt hér til hvers hann þarf þetta vald. Ég sé ekki að ástæðan geti verið önnur en sú, á meðan ekki hafa verið færð rök fyrir einhverri annarri ástæðu, að aðilar sem nú eru að sækjast eftir rannsóknarleyfunum telji það svo gríðarlega mikilvægt að vilyrði fyrir nýtingarleyfinu fylgi að hæstv. ráðherra megi til með að hafa það í hendi sinni og vilji gera það fyrir einhverja sem bíða eftir þessum leyfum.

Ég geri ráð fyrir því að bæði sjálfstæðismenn, og auðvitað líka hv. formaður nefndarinnar og framsóknarmenn, útskýri þetta kannski betur fyrir okkur og leiði okkur til skilnings á því hvers vegna hæstv. ráðherra á að hafa þennan rétt áfram, eða þetta valkvæða ákvæði. Það er full ástæða til að fá útskýringar á því. Þetta ástand kallar nefnilega á áframhaldandi kapphlaup. Kannski eru menn komnir hér með aðallistann en það er ábyggilega verið að velta fyrir sér fleiri möguleikum. Alþingi er því með endurskoðun laganna að skapa vandamál í stað þess að gera tilraun til þess draga úr því. En það er svo sem hægt að skoða þessa hluti í heild sinni og hefði átt að gera. Það höfum við lagt áherslu á í umræðum um þau mál sem hafa komið hér inn. Það eru nefnilega býsna mörg frumvörp, og sum af þeim eru orðin að lögum, sem eiga að taka við af vatnalögunum frá 1923.

En af hverju voru vatnalögin frá 1923 sett? Það var vegna þess að Íslendingar óttuðust að erlendir aðilar mundu eignast fossana á Íslandi. Er það ekki það sem við erum að tala um núna, að menn ætla að eignast þessar orkulindir, komast yfir þær á því tímabili sem líður þangað til menn hafa skapað reglurnar? Við stöndum sem sagt í svipuðum sporum og menn á öndverðri öldinni þegar erlendir aðilar sýndu mikinn áhuga á því að fara að virkja fossana á Íslandi, eignast þá, kaupa þá og sumir vildu endilega selja. Nú reynir á hv. Alþingi Íslendinga hvort það stendur í fæturna eins og það gerði þá eða ekki? Mér finnst einhvern veginn ýmislegt benda til þess að það vanti svolítið upp á metnaðinn hjá hv. alþingismönnum hvað þessa hluti varðar núna. Þegar menn höfðu árum saman farið yfir þessi mál urðu vatnalögin frá 1923 að lögum frá Alþingi. Undanfari þess var fossanefnd sem hafði verið sett á og minnihlutaálit fossanefndar frá 1917–1919 var í raun og veru undirstaða þeirra laga sem hafa verið í gildi síðan og menn eru núna að endurskoða.

Þeir sem hafa skilað tillögum eða frumvörpum til Alþingis á grundvelli þeirrar endurskoðunar sem hefur farið fram undanfarin ár, hvað sögðu þeir í umsögnum sínum? Þeir sögðu að vatnalögin hefðu enst ótrúlega vel. Ótrúlega fá vandamál hefðu verið uppi á þeim tíma, mjög sjaldan þrætur og málaferli vegna vatnalaga af því að menn vönduðu sig við þau lög. En nú koma menn — og það er ekkert óeðlilegt, þetta eru orðin gömul lög og auðvitað þarf að færa þau til nútímans. Ýmsar þarfir hafa myndast sem þarf að uppfylla sem sést best á því að lagabálkarnir sem menn setja í raun og veru á grunni vatnalaganna eru svo margir sem raun ber vitni.

Við erum t.d. búin að sjá raforkulög verða að lögum sem taka til nýtingar á orkulindunum í landinu. Menn hafa á grundvelli þeirra og fleiri laga komið á þeirri samkeppni sem á að taka gildi að fullu um áramótin. Þá voru sett í tengslum við það lög um jöfnun kostnaðar við flutning og dreifingu á raforku. Þau voru líka tengd saman við þetta í rauninni og sett voru lög sem hétu lög um breytingu á ýmsum lögum á orkusviði. Síðan voru lögð fram tvö lagafrumvörp á síðasta ári. Annars vegar frumvarp til nýrra vatnalaga sem nú er aftur lagt fram og hins vegar frumvarp um rannsóknir og nýtingu á jarðrænum auðlindum, sem ég nefndi hér fyrr. Það vita menn líka að einn af þeim lagabálkum sem tilheyrir í rauninni endurskoðun laganna frá 1923 eiga að verða lög um vatnsvernd eða eftir því sem nefndin best veit mun það nafn hafa a.m.k. verið vinnuheiti á því frumvarpi og það frumvarp á að byggjast á Evróputilskipuninni um vatnsvernd. Nefndinni er kunnugt um og hún fékk að vita á síðasta vetri að það frumvarp væri í vinnslu í umhverfisráðuneytinu, lægi þar í drögum eins og sagt var. Það frumvarp hefur ekki komið fram enn. Við vitum líka núna að ekki er stefnt að því að lögfesta frumvarp til laga um rannsóknir og nýtingu á jarðrænum auðlindum fyrr en á næsta vetri ef vel gengur. Þá vantar enn það frumvarp sem ég nefndi áðan sem á að koma úr umhverfisráðuneytinu.

Þess vegna er full ástæða til að gagnrýna það hvernig að þessu hefur verið staðið vegna þess að það hlýtur að þurfa heildaryfirsýn yfir þá lagabálka sem eiga að koma í stað laganna frá 1923, en mönnum hefur legið svo á að skilningur á þessu hefur ekki verið fyrir hendi. Það sannaðist síðan í umfjöllun bæði um vatnalagafrumvarpið á síðasta vetri og um frumvarpið um rannsóknir og nýtingu á jarðrænum auðlindum, að það var æðimargt sem þeir er veittu umsagnir um það frumvarp höfðu við það að athuga og þeir höfðu líka miklar athugasemdir við vatnalagafrumvarpið sem segir sitt um það. Auðvitað er þetta skiljanlegt. Ég er ekki að setja út á það þó að athugasemdir komi við lagafrumvarp og auðvitað þurfa nefndir þingsins að fást við það og taka sér þann tíma sem þarf til þess að vinna þau mál sem koma inn. Það er náttúrlega höfuðskilyrði að menn hafi yfirsýn yfir málaflokkinn sem um er að ræða. Það hefur ekki verið skilningur á því hjá stjórnarflokkunum og ég verð að segja alveg eins og er að ég botna ekki almennilega í þessu. Mér finnst að full ástæða sé til að menn geri betur grein fyrir því hvers vegna svona er gengið fram.

Hæstv. forseti. Í umræðum í nefndinni um þessi mál og reyndar á hv. Alþingi líka höfum við verið stöðugt minnt á að við tókum þátt í flutningi þessa máls í vor sem leið. Ég kvarta svo sem ekki undan því. Ég er búinn að útskýra hvers vegna við gerðum það. Við gerðum það vegna þess að meiri hluti nefndarinnar sagði við okkur algerlega skýrt og skorinort að ef við gerðum það ekki yrði lagafrumvarpið sem fyrir lá um jarðrænar auðlindir að lögum. Það frumvarp var ekki björgulegt og margt í því sem hefði þurft að breyta. Við töldum það ómaksins vert að reyna að koma í veg fyrir það.

Við sáum líka fram á að vatnalagafrumvarpið mundi ekki verða að lögum í fyrravetur og við töldum að ef bæði þessi lagafrumvörp mundu liggja kæmust menn til einhvers ráðs með þessa hluti og mundu fara að vinna að þessu með einhverja heildaryfirsýn í huga. En hvað gerist? Menn mæta alveg nákvæmlega eins til þessa haustþings eins og þeir voru búnir á þinginu á undan. En munurinn á því hvernig við í minni hlutanum mætum til þessa þings er sá að nú höfum við fengið býsna skýrar staðfestingar á því hvaða vandi er uppi og komin er miklu heillegri mynd á hver eftirspurnin er eftir því að fá að nýta þessar auðlindir. Satt að segja er það ekki fyrir alla að vilja bera ábyrgð á því ástandi sem er að koma upp. Það virðist hins vegar vera þannig að menn vilji glaðir gera það. Ég kemst ekki yfir það, ég skil ekki hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn a.m.k. hefur ekki haft burði í sér til að reyna að ganga í lið með væntanlegum samkeppnisaðilum á þessum raforkumarkaði framtíðarinnar með þeim hætti að sjá til þess að sem flestir þurfi a.m.k. að hlíta sömu reglum sem á að skapa í þeirri nefnd sem verið er að leggja til að fjalli um þær reglur sem eiga að gilda.

Það er svo mikill tvískinnungur í afstöðu nefndarmanna meiri hlutans. Annars vegar koma þeir og vilja setja upp þessa nefnd, sem er bara gott og ég hef hælt þeim fyrir að hafa ákveðið að gera það þó að ráðherrann hafi ekki viljað hafa þá nefndarskipan í frumvarpinu, en hins vegar eru þeir ekki tilbúnir að líta á þau rök sem við leggjum fram og sem þeir sáu sjálfir. Þeir sátu fundi nefndarinnar og ræddu við forsvarsmenn opinberu raforkuframleiðendanna í landinu. Þeir hljóta að hafa séð fyrir sér hvers konar samkeppnisumhverfi það væri sem þeir ætluðu að fara að skapa.

Síðan er alveg ástæða til að nefna vegna þess að hv. formaður nefndarinnar var að búa til einhverja þoku í kringum skilin á milli rannsóknarleyfis og nýtingarleyfis. Segja má að engin skil séu þar á milli önnur en þau að fram fer umhverfismat. Ef hæstv. ráðherra veitir nýtingarleyfið eru engin skil á milli önnur en umhverfismatið. Engin spurning er uppi um hver fær að nýta leyfið þegar búið er að veita vilyrðið. Spurningin er þá um hvort umhverfismatið segi að nýta megi svæðið eða ekki. Og það er alveg rétt, auðvitað þarf að meta það á þeim tíma og ekkert nema eðlilegt að það sé gert.

Hins vegar er ekki hægt að sjá fyrir sér samkeppnisumhverfi um að nýta þessar auðlindir ef menn geta ekki metið verðmæti þeirra með einhverjum hætti. Hvenær á það að fara fram? Reglurnar sem verða settar um það og nefndin sem um þær á að fjalla hlýtur að mínu viti að horfa fyrst og fremst til tillagna auðlindanefndarinnar. Þá verður annaðhvort að láta fara fram einhvers konar útboð, auglýsa þær auðlindir sem nýta má og það yrði þá að hengja saman í einn pakka rannsóknarleyfi og nýtingarleyfi og bjóða út. Eða að leyfa rannsóknir og síðan verði metið á einhvers konar jafnræðisgrundvelli hverjir eigi að fá þau. Það segir okkur að það verður ekki endilega sá sami sem rannsakar og sá sem nýtir auðlindina. Þannig er það í t.d. olíuvinnslunni í heiminum. Það eru meira að segja til alveg sérstök fyrirtæki sem stunda bara rannsóknir. Hins vegar er ekkert sem kemur í veg fyrir það í sjálfu sér að þeir sem fá rannsóknarleyfin fái síðan nýtingarleyfin, og sjálfsagt eru þeir oftast í bestu aðstöðunni til að fá þau. Aðrir sem hugsanlega fengju nýtingarleyfi eftir að eitthvert annað fyrirtæki hefði rannsakað, yrðu samkvæmt ákvæðum frumvarpsins að greiða þann kostnað sem liggur þá fyrir vegna rannsóknanna. Það er alveg skilningur á því, meiri hlutinn skilur það alveg að það þurfi. Þarna er ákvæðið. En til hvers er það ákvæði ef hæstv. ráðherra er búinn að veita vilyrði fyrir nýtingunni? Er það til þess að menn geti svo bara selt þetta allt saman, menn geti pissað í eina af þessum þúfum, fengið vilyrði frá ráðherranum og boðið þetta fram á markaðnum? Halda menn að markaðurinn verði ekki til? Auðvitað verður hann til. Menn þurfa fyrst og fremst að huga að svona hlutum þegar þeir eru í aðsigi, ekki einhvern tíma seinna þegar allt er um seinan.

Ég get ekki skilið hvers vegna menn hafa ekki komist til ráðs hvað þetta varðar. Ég óska eftir skýringum á því, ég endurtek, ég óska eftir skýringum á því hvers vegna hæstv. ráðherra á að hafa þetta valkvæða ákvæði hjá sér. Það er tækifæri til að taka þetta ákvæði út. Við erum hér með breytingartillögur sem ganga út á það að þetta ákvæði verði fellt úr lögunum og þá stendur ráðherrann ekki frammi fyrir þeim vanda að fyrirtæki sé að þrýsta á ráðuneytið með að fá nýtingarleyfi með rannsóknarleyfunum. Ég er sannfærður um að það mundi verða til þess að draga úr því kapphlaupi sem nú þegar er hafið. Það er óábyrgt frá hendi Alþingis að standa fyrir slíku gullæði af þessu tagi í landinu.

Hæstv. forseti. Ég get samkvæmt þingsköpum haldið þrjár ræður í þessari umræðu og það getur vel verið að ég geri það. En vegna þess að ég veit að mörgum finnst þetta athyglisverð og áhugaverð umræða til að taka þátt í ætla ég svo sem ekki að lengja mitt mál miklu meira en orðið er í þessari fyrstu ræðu. En það er ýmislegt sem ég á eftir að fara yfir og mun gera síðar í umræðunni ef tilefni gefst til. Ég held að það sé nokkuð ljóst að margir vilja ræða þetta mál. Okkur er auðvitað kunnugt um, það kom mjög skýrt fram hjá vinstri grænum, að þeir vilja að málið verði stöðvað í heild, að ekki verði gerð þessi breyting á lögunum sem hér er verið að leggja til og er auðvitað bara bráðabirgðaaðgerð. Það fer ekkert á milli mála. Þetta er bara bráðabirgðaaðgerð til þess að mögulegt verði að veita rannsóknar- og nýtingarleyfi eins og meiri hlutinn stefnir að að gert verði. Það er ekki Alþingi til neins sérstaks sóma að talað skuli um lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Það er ekki mjög skemmtilegt í sjálfu sér að lögin skuli eiga að heita lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, þ.e. að menn séu að skjóta inn í þau lög nýtingu á vatni sem rennur ofan jarðar. Hér eru ekki margar neðanjarðarár, svo ég viti, sem stendur til að virkja. Auðvitað er þetta bráðabirgðaaðgerð. Í ljósi þess að þetta er bráðabirgðaaðgerð finnst mér að menn verði að gá að sér og a.m.k. gera það sem mögulegt er til þess að koma í veg fyrir það kapphlaup sem er í gangi.

Mér finnst ástæða til þess að vekja athygli á því — það hefur kannski breyst frá því að ég fór í ræðustólinn — að áður en ég fór í ræðustólinn sá ég að býsna margir voru á mælendaskránni. Ég taldi þá ekki en ætli þeir hafi ekki verið tíu, tólf, eitthvað svoleiðis. En það var enginn sjálfstæðismaður á mælendaskránni. Ég hefði talið fulla ástæðu til þess að þeir fengju rými á mælendaskránni. (Gripið fram í.) Ég mun ekki gráta það þó að þeir færðust upp þannig að þeir hefðu möguleika á því að koma sjónarmiðum Sjálfstæðisflokksins að í þessari umræðu og útskýra fyrir þingheimi hvernig þeir sjá fyrir sér samkeppni opinberu raforkufyrirtækjanna í framtíðinni og hvaða aðstöðu aðrir aðilar komi til með að hafa á þeim markaði sem þeir sjá fram á að er að myndast og hvernig standi á því að þeir hafa slíka ofurtrú á hæstv. iðnaðarráðherra að þeir vilja að hún hafi allt vald í þessum efnum. Það væri fínt að fá útskýringar á því.

Ég satt að segja er á þeirri skoðun að þeim muni vefjast tunga um tönn við að svara því hvernig í ósköpunum standi á því að Framsóknarflokkurinn getur bara látið þá gera hvað sem er. Ég bara trúi því ekki að þeir sjái ekki hvers konar della þetta er. (Gripið fram í.) En það kemur auðvitað í ljós.