132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Vátryggingarsamningar.

344. mál
[14:09]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 30/2004, um vátryggingarsamninga. Nefndarálitið kemur fram á þskj. 545 og ætla ég að sleppa því að lesa fyrri hlutann.

Við athugun nefndarinnar á málinu kom í ljós að gildissvið 61. gr. laganna sem fjallar um persónutryggingar þykir fullvíðtækt, einkum með tilliti til kjarasamninga launþega á vinnumarkaði. Slysatryggingar launþega munu falla undir ákvæði laganna um hóptryggingar en slíkar tryggingar hafa hingað til verið, og verða áfram, tryggðar með kjarasamningum aðila á vinnumarkaði. Framkvæmd kjarasamningsbundinna trygginga hefur þótt einföld í framkvæmd og haft í för með sér tiltölulega lítinn kostnað við umsýslu og er því ekki ástæða til að hrófla við þeim. Nefndin leggur því til að undanþáguákvæði 4. mgr. 61. gr. laganna verði víkkað og látið ná til persónutrygginga launþega samkvæmt kjarasamningum.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri breytingu: Á eftir 1. gr. komi ný grein sem orðist svo:

Við 4. mgr. 61. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá gilda ákvæði um hópvátryggingar í þessum hluta laganna ekki um persónutryggingar launþega samkvæmt kjarasamningum.

Undir nefndarálitið rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Dagný Jónsdóttir, Birgir Ármannsson, Kristján L. Möller, Ásta Möller, Ögmundur Jónasson, Siv Friðleifsdóttir og Lúðvík Bergvinsson.