132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Starfsmannaleigur.

366. mál
[12:04]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ekki að ræða mín sjónarmið gagnvart þessu frumvarpi. Það geri ég á eftir í ræðu. Ég var að spyrja hv. þingmann um hans skoðun á þessu og hvaða afleiðingar það hefur ef hv. þingmaður gengur gegn forustu ASÍ með því að breyta frumvarpi sem ASÍ hefur samið um og hefur samið. Hann gerir breytingartillögur við það og ég spyr: Mun það ekki breyta forsendum kjarasamninga þannig að þeir fari upp í loft?