132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Starfsmannaleigur.

366. mál
[12:05]
Hlusta

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eigum við ekki að sjá við 2. umr. hvort þessi breytingartillaga nái fram að ganga. Nái hún fram að ganga skal ég taka langa og ítarlega umræðu við 3. umr. um afleiðingar og áhrifin af því að þessi tillaga er samþykkt. En ég geri mér góðar vonir um að hún verði samþykkt. Ég heyrði ekki betur á hv. þingmanni en að hann muni styðja þessa tillögu. Kannski vonandi fleiri þingmenn.