132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Dýravernd.

312. mál
[16:56]
Hlusta

Frsm. umhvn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýravernd, nr. 15/1994.

Þetta er ekki flókið mál. Með frumvarpinu er lagt til að lagt verði bann við prófun snyrtivara á lifandi dýrum og er þannig innleidd tilskipun Evrópusambandsins 2003/15/EB um breytingu á tilskipun 76/768/EBE um samræmingu ákvæða í lögum aðildarríkjanna varðandi snyrtivörur.

Nefndin vill leggja áherslu á að flýtt verði vinnu sem snertir skipulagningu dýraverndunarmála með það að markmiði að einfalda stjórnsýslu í tengslum við málaflokkinn og að skoðað verði að málefni dýraverndar heyri undir eitt ráðuneyti.

Nefndin gerir tillögu um að svokallað innleiðingarákvæði bætist við frumvarpið og leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Undir þetta skrifar sá er hér stendur og hv. þingmenn Ásta R. Jóhannesdóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Ásta Möller, Mörður Árnason, Kjartan Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Sigurrós Þorgrímsdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir.

Hv. þm. Sigurjón Þórðarson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu.