132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Tekjuskattur og eignarskattur.

326. mál
[18:28]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarpið sem við hér ræðum en hv. efnahags- og viðskiptanefnd kom með nýja málsgrein og fórst fyrir að geta um gildistöku hennar. Úr því er bætt í breytingartillögunni.