Hæstaréttardómur í máli jafnréttisstýru.
Hæstv. forseti. Þess eru auðvitað allmörg dæmi að íslenska ríkið hafi verið dæmt til greiðslu tiltekinna fjárhæða í tengslum við starfslok einstakra starfsmanna ríkisins. Ég gæti nefnt nokkur slík dæmi en ég ætla að láta eitt nægja, dóm Hæstaréttar frá árinu 1995 sem hefst á bls. 1347. Sá dómur varðar annars vegar samskipti samgönguráðherra og fjármálaráðherra en hins vegar tiltekinn starfsmann Vita- og hafnamálastofnunar árið 1989 þegar staða þess síðastnefnda var lögð niður. Niðurlagningin var dæmd ólögmæt og starfsmanninum dæmdar bætur. Hæstiréttur staðfesti þá dóm héraðsdóms.
Hvers vegna vel ég að vekja sérstaklega athygli á þessu máli, hæstv. forseti? Jú, vegna þess að sá hæstv. samgönguráðherra sem þarna átti hlut að máli heitir Steingrímur J. Sigfússon, sá hinn sami og gengur nú hvað harðast hér fram gegn mér, hæstv. forseti, og hefur jafnvel ýjað að því að ég ætti að segja af mér vegna þess máls sem hér er til umræðu. Einhvern tíma hefði þetta kallast að kasta steini úr glerhúsi, hæstv. forseti. (ÖS: Steingrímur J. …) Hæstv. fjármálaráðherra á þeim tíma hét Ólafur Ragnar Grímsson og er nú horfinn til annarra starfa eins og kunnugt er. Þessir heiðursmenn voru að vísu farnir frá völdum þá loksins dómurinn féll en hann varðaði embættisfærslu þeirra engu að síður.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að ræða efnislega dóm Hæstaréttar enda sé ég ekki að það þjóni nokkrum tilgangi jafnvel þótt ég sé ósáttur við hann. Dómurinn hefur verið kveðinn upp. Ég dreg enga dul á að niðurstaðan kom mér á óvart, ég átti von á því að niðurstaða Hæstaréttar yrði staðfesting á dómi héraðsdóms en þar var íslenska ríkið sýknað af öllum kröfum stefnanda og ekki talið að brotinn hefði verið á henni réttur að nokkru leyti.
Niðurstaðan liggur hins vegar fyrir, hæstv. forseti. Ég fagna því að þessu máli er lokið og óska Valgerði H. Bjarnadóttur velfarnaðar.