132. löggjafarþing — 42. fundur,  9. des. 2005.

Þingfrestun.

[19:17]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Þá er komið að lokum síðasta fundar Alþingis fyrir jólahlé. Við ljúkum nú þingstörfum þann 9. desember eins og starfsáætlun gerir ráð fyrir og vil ég láta í ljós þakkir mínar til þingmanna fyrir mjög gott samstarf á haustþinginu. Það er ánægjuefni að okkur hefur tekist á undanförnum árum að haga þinghaldinu með þeim hætti að því hefur verið lokið fyrri hluta desembermánaðar. Sú breyting hefur verið til mikilla bóta fyrir einstaklinga og stofnanir sem þurfa að vinna eftir þeirri löggjöf sem hér er sett fyrir áramót. Skiptir þar ekki síst máli að fjárlög komandi árs liggja nú fyrir þegar í byrjun desember.

Þetta er mikil breyting frá því sem hér tíðkaðist til skamms tíma þegar helstu einkenni þinghaldsins í desember voru langir fundir og langar ræður fram undir jól, oft fram á kvöld og nætur. Á þetta er nú komin betri regla í góðu samstarfi við alla flokka þó að stundum bregði út af eins og var fyrri hluta þessarar viku. Það er eins og máttarvöldin hafi viljað minna okkur á að hliðarsporin geta verið varasöm því eftir næturfund aðfaranótt miðvikudags brann aðalrafmagnstafla þingsins yfir. Ég segi: Tökum þetta sem tákn um að haga hér vinnutíma með skikkanlegum hætti.

Það er orðið löngu tímabært að við skipuleggjum vinnuna þannig að tekið sé meira tillit til þess að þingmenn eru líka fjölskyldufólk og fjölskyldur þingmanna og starfsmanna þurfa líka og eiga að fá sinn tíma.

Mér finnst einnig ástæða til að víkja að þeirri árvissu umræðu sem fer af stað í fjölmiðlum í desember þegar gert er hlé á þingfundum en þá virðast margir líta svo á að þingmenn séu komnir í frí. Þetta endurspeglar þann útbreidda misskilning að þingstarfið snúist fyrst og fremst um ræðuhöld í þingsalnum en vitaskuld er starf þingmanna miklu fjölþættara en svo að það einskorðist við Alþingishúsið. Starfstími þingmanna er í reynd allir mánuðir ársins enda þurfa þingmenn að sinna margvíslegum skyldum í þinghléi þó að ekki séu þingfundir.

Nú þegar jólahátíðin er í nánd vil ég færa alþingismönnum öllum svo og starfsfólki Alþingis bestu óskir um gleðilega, farsæla og friðsæla hátíð og þakka þeim fyrir samstarfið á því ári sem nú er senn á enda. Þeim sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári. Landsmönnum öllum sendi ég mínar bestu jóla- og nýársóskir.