132. löggjafarþing — 47. fundur,  20. jan. 2006.

Horfur í loðnuveiðum.

[10:33]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs undir liðnum Athugasemdir um störf þingsins til að ræða stöðu loðnuveiða hér við land og loðnuleit. Ég vil gjarnan fá að nota tækifærið í lok máls míns til að beina spurningum til hæstv. sjávarútvegsráðherra sem er hér í salnum.

Ástandið er þannig að mjög ískyggilegar horfur eru varðandi veiðar og vinnslu á þeim mikilvæga stofni. Engin loðnuveiði var í sumar, ekki nú í haust og sáralítil rétt fyrir jól. Núna er runninn upp 20. janúar og vertíð ætti að öllu jöfnu að vera komin í fullan gang en enn bólar lítið sem ekkert á loðnunni þó svo stór floti skipa hafi stundað mjög umfangsmikla leit nánast alveg frá áramótum. Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessu því ég fór sjálfur út á miðin rétt eftir áramót, fyrstu vikuna í janúar til að skoða ástandið. Það verður að segjast eins og er og þar mæli ég af reynslu því ég hef tekið þátt í svona leitum áður á þessum árstíma að ástandið var mjög ískyggilegt því það var ekkert að sjá, ekkert líf.

Það rennir stoðum undir að eitthvað mjög mikið hljóti að vera að. Ég styð það m.a. með þeim röksemdum sem ég nefndi áðan að loðnuveiðarnar hafa gengið mjög illa og menn hafa séð mjög lítið. Hér skýtur náttúrlega mjög skökku við nú á þessum tímum þegar flotinn hefur aldrei verið fullkomnari, leitartækin aldrei verið fullkomnari og skilyrði hafa á ýmsan hátt verið hagstæð til að stunda loðnuleit.

En þrátt fyrir það, sem hefur valdið mér bæði mikilli undrun og vonbrigðum, hefur sjávarútvegsráðherra leyft skipum að stunda veiðar á því þó örlitla sem hefur fundist með veiðarfærum sem margir telja að séu mjög háskaleg, með flotvörpum. Nú síðast í gær fengum við fréttir af því að stærsti togari landsmanna hefði verið að veiða 500 tonn af loðnu. Miklar líkur eru á að þetta trufli mjög göngu fisksins. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvers vegna í ósköpunum stöðvar hann ekki loðnuveiðar alveg á meðan óvissan er svo mikil?