132. löggjafarþing — 47. fundur,  20. jan. 2006.

Umræða um störf þingsins.

[11:27]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vill segja það út af þeim orðum hv. þingmanns að sá liður, þegar rætt er um störf þingsins, að um efni þeirrar umræðu hefur túlkunin verið með nokkuð frjálslegum hætti. Að öðru leyti vill forseti benda á það að hv. þingmenn bera ábyrgð á orðum sínum.