132. löggjafarþing — 50. fundur,  24. jan. 2006.

Skipun nefndar um stöðu verknáms.

[13:34]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Herra forseti. Ég hefði nú haldið að hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson kæmi hingað upp og fagnaði skipan faglegs starfshóps um framtíðarskipan starfs- og verkmenntunar í landinu. Ég hefði frekar haldið að hér yrði mikill fögnuður. Þar er hreint og klárt um faglega nefnd að ræða. Ég hvet hv. þingmenn til þess að kynna sér hverjir sitja í nefndinni.

Þrír eru ráðherraskipaðir: Jón B. Stefánsson, skólameistari Fjöltækniskóla Íslands, er formaður, skólameistari Iðnskólans í Reykjavík er í nefndinni og síðan leitaði ég til Hjálmars Árnasonar, ekki af því að hann er framsóknarmaður heldur vegna margra áratuga reynslu hans af skólastarfi. Hjálmar var skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem er m.a. starfandi verkmenntaskóli í dag. Ég hefði haldið að menn fögnuðu faglega skipuðum hópi. Í hópnum eru líka fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands, fulltrúi frá Samtökum iðnaðarins og fulltrúi frá Skólameistarafélaginu. Það er alveg ljóst að nefndin er faglega skipuð.

Ég vil líka geta þess að í erindisbréfi nefndarinnar er sérstaklega tekið fram að nefndarmenn eigi að leita til hagsmunaaðila. Ef stjórnmálaflokkarnir óska þess geta þeir að sjálfsögðu mætt fyrir nefndina og komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Ég vil undirstrika að það var aldrei ætlunin að skipa þverpólitíska nefnd, miklu frekar að fá fagaðila að verki til að móta framtíðarskipan starfsiðnar og verknáms í landinu. Þess vegna eru þessar aðilar kallaðir til, þar á meðal hv. þm. Hjálmar Árnason sem hefur víðtæka, mikla og góða reynslu úr skólakerfinu.