132. löggjafarþing — 50. fundur,  24. jan. 2006.

Matvælarannsóknir hf.

387. mál
[14:27]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um breytingar á lögum um hlutafélög, sérstaklega að því er varðar hlutafélög í eigu ríkisins þar sem gert er ráð fyrir því að gerðar verði aðrar kröfur til slíkra félaga. Ég bið hv. þingmann að kynna sér þau þar sem m.a. kemur fram að fulltrúum fjölmiðla sé heimilt að sækja aðalfundi. Það hefur verið tekið sérstaklega á því og það mál mun koma til umræðu mjög fljótlega.