132. löggjafarþing — 50. fundur,  24. jan. 2006.

Stjórn fiskveiða.

353. mál
[16:29]
Hlusta

Jón Gunnarsson (Sf):

Frú forseti. Það lætur nú ekki mikið yfir sér frumvarpið sem við erum að ræða. Það er örfáar setningar um að 9. gr. a í fiskveiðistjórnarlögunum falli brott. Eins og hæstv. ráðherra fór hér yfir snýst þessi 9. gr. um það að hingað til í nokkuð langan tíma hefur verið úthlutað jöfnunarpotti, sem kallaður hefur verið, upp á 3 þús. tonn af þorski til ákveðins hóps báta. Fyrst var þetta tímabundið og átti að vera frá fiskveiðiárinu 1999/2000, þeim fiskveiðiáramótum til 2005/2006. En árið 2002 var þetta ákvæði gert varanlegt. Þá var fest í fiskveiðistjórnarlögunum að úthluta bæri þessum hópi báta þessum 3.000 tonnum, ekki tímabundið eins og áður hafði verið heldur var þar komin varanleg heimild til að úthluta þeim þessum 3.000 tonnum.

Í ákvæði til bráðabirgða segir, með leyfi forseta:

„Í upphafi fiskveiðiárs 2006/2007 skal úthluta aflahlutdeild í þorski þeim fiskiskipum sem réttur skv. 9. gr. a er bundinn við 28. október 2005.“

Ég velti því fyrir mér af hverju þarna standi 28. október 2005. Ég sé ekki alveg í fljótu bragði ástæðuna fyrir dagsetningunni og þætti vænt um ef hæstv. ráðherra gæti svarað þeirri spurningu hér á eftir af hverju þessi dagsetning er valin. Síðan segir í ákvæði til bráðabirgða, með leyfi forseta:

„Reiknigrunnur hvers úthlutunarréttar nemur meðaltali þess aflamarks sem úthlutað hefur verið á grundvelli viðkomandi réttar á fiskveiðiárunum 1999/2000–2005/2006, að báðum árum meðtöldum. Þó skal skerða meðaltalið hlutfallslega miðað við lækkun leyfilegs heildarafla í þorski milli fiskveiðiáranna 1999/2000 og 2005/2006. Aflahlutdeild hvers fiskiskips er síðan reiknuð út frá reiknigrunni þess sem hlutfall af úthlutuðu aflamarki fiskveiðiársins 2005/2006 í þorski. Heimilt er ráðherra að setja nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, þar á meðal um flutning réttar milli fiskiskipa. Að lokinni þessari úthlutun skal aflahlutdeild allra fiskiskipa í þorski endurreiknuð með hliðsjón af þeim breytingum sem af þessari úthlutun leiðir.“

Ég verð nú að viðurkenna, frú forseti, að ég varð að lesa þetta ákvæði til bráðabirgða nokkrum sinnum áður en ég skildi hvað var í raun verið að gera og áttaði mig ekki alveg strax á þeirri breytingu sem þarna á sér stað. Þó kom fram hjá hæstv. sjávarútvegsráðherra í framsögu fyrir þessu frumvarpi hér áðan að með þessu frumvarpi er verið að fella niður þessa sérstöku úthlutun á þessum 3.000 tonnum til þessara báta. Jafnframt er verið að skerða þessar 3.000 lestir talsvert frá því sem verið hefur en um leið að leyfa mönnum að fara með þetta eins og hverja aðra aflahlutdeild þannig að aflétt væri takmörkunum á flutningi og slíku. Mér sýnist því í fljótu bragði, þegar við förum yfir það sem þetta kemur til með að gera, að réttur ákveðinna báta til að fá úthlutað 3.000 tonnum af þorski, eins og verið hefur frá árinu 1999, er að falla niður og nú eiga þeir eftirleiðis að fá úthlutað hlutdeild af heildarþorskaflamarki.

Eins og þessu er lýst í frumvarpinu þá á ekki að miða við hve stórt hlutfall 3.000 tonn af þorski er á núverandi aflamarki, eða þeim 198.000 tonnum sem eru á yfirstandandi ári, heldur á að miða við hversu stórt hlutfall 3.000 tonn voru af 250.000 tonnum sem var aflamarkið á árinu 1999 þegar þetta var sett á. Þetta þýðir að í staðinn fyrir að 3.000 tonnum sé úthlutað verður úthlutað 2.376 tonnum. Það er í raun verið að skerða aflaheimildir þessara báta um 624 tonn. Ef við veltum því fyrir okkur hvaða stærðarhlutföll eru á þessu svona fjárhagslega þá sýnist mér miðað við leiguverð á markaði í dag að þetta séu um það bil 75 milljónir á ársgrundvelli fyrir leigu. En ef við horfum á verðlag á varanlegum kvóta þá er í raun verið að taka af þessum bátum sem fengið hafa 3.000 tonn, burt séð frá því hvert heildaraflamarkið sé, sem nemur um það bil einum milljarði króna að verðmætum í varanlegum aflaheimildum.

Nú getur vel verið að þessi hópur báta telji það bara eðlilegt og sjálfsagt, eða eigendur þeirra, að þeir þurfi að greiða fyrir að af þessum kvóta, af þessum 3.000 tonnum, sé aflétt þeim kvöðum sem á honum hafa verið frá því að þetta var sett inn. Árið 2002 virtist þingið telja eðlilegt að halda þessu inni áfram og hætta að hafa það tímabundið eins og það hafði verið áður, heldur yrði það gert ótímabundið eins og þá var gert. En nú virðist hæstv. ráðherra telja að ekki sé hægt að hafa það þannig lengur. Ég skil að mörgu leyti þá viðleitni að reyna að einfalda kerfið eins og hægt er og kannski reyna að minnka sérstakar úthlutanir. En ég velti því fyrir mér hvort sú skerðing miðað við undanfarin ár sem þessir bátar verða fyrir, verði þetta að lögum, sé eðlileg og hvort hæstv. ráðherra hafi á einhvern hátt haft samráð við fulltrúa eigenda þessara báta eða velt því upp hvort menn séu tilbúnir til að sætta sig við þessa skerðingu gegn því að fá aukin réttindi til að færa og flytja á milli því það er í raun það eina sem eigendur þessara báta eru að fá í staðinn fyrir þau 624 tonn sem þetta mundi skerðast um ef miðað er við 198.000 lesta aflamark.

Nú ætla ég ekki í þessari ræðu að eyða mjög löngum tíma í að ræða þetta. Þetta er tiltölulega einfalt mál. Það snýst um, eins og ég var að segja, frú forseti, talsvert háar fjárhæðir því um leið og við erum farin að tala um eitthvað sem heitir tugir tonna eða hundruð tonna í núverandi fiskveiðistjórnarkerfi með þeim takmörkunum sem á því er þá myndast þessi mikli verðmætaréttur. Því er eðlilegt að maður velti fyrir sér tilfærslu á 624 tonnum því í raun er verið að færa 624 tonn frá þessum bátahóp yfir til allra hinna. Það er verið að setja þetta inn í heildaraflamarkið og það kemur til með að breytast hjá hinum til hækkunar en hjá þessum bátum kemur þetta til með að virka til lækkunar. Þegar um er að ræða í varanlegum heimildum, eins og ég sagði áðan, verðmæti upp á rúmlega þúsund milljónir króna eða í kringum milljarð á því gengi sem nú er á varanlegum kvóta þá hlýtur maður að velta fyrir sér hvort svona lagað gangi í gegn án þess að nokkur lyfti augabrún eða reyni með neinum hætti að spyrja út í hvort þarna sé eðlilega að staðið.

Mér þætti vænt um frú forseti, ef hæstv. ráðherra gæti gefið sér tíma til að svara þeim spurningum sem ég hef hér lagt fram því ég tel nauðsynlegt fyrir okkur áður en við getum rætt þetta mikið lengur að fá svör við þeim.