132. löggjafarþing — 52. fundur,  25. jan. 2006.

Lögreglulög.

46. mál
[14:55]
Hlusta

Valdimar L. Friðriksson (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að mæla fyrir frumvarpinu sem hér er til umræðu. Hann tók að vísu fram að ekki þyrfti að standa skil á löggæslukostnaði ef mót — í því tilfelli er hann væntanlega að tala um landsmót eða unglingalandsmót — eru haldin á höfuðborgarsvæðinu. Það er eitt af því sem íþróttahreyfingin þarf að fá á hreint. Það vill svo til að næsta stóra landsmót verður haldið í Kópavogi. Ef fullyrðing hv. þingmanns reynist rétt, að þar þurfi ekki að greiða löggæslukostnað, þá er ljóst að mótshaldarar, bæði UMSK og Kópavogsbær, þurfa að hafa það atriði nákvæmlega á hreinu. Þarf að gera ráð fyrir milljónum í löggæslukostnað við íþróttamótið eða ekki?

Ég bar á 131. löggjafarþingi fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra um löggæslukostnað á landsmótum Ungmennafélags Íslands. Þar stendur einfaldlega:

„Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að Ungmennafélag Íslands þurfi ekki að greiða löggæslukostnað á landsmótum og unglingalandsmótum sínum?“

Þessu hefur aldrei verið svarað. Hæstv. dómsmálaráðherra hvítþvær gjörsamlega hendur sínar af þessu máli, varðandi löggæslukostnað á íþróttamótum.

Áður hafði ég sent dómsmálaráðherra fyrirspurn um löggæslu á íþróttamótum. Þar segir m.a. í svari, með leyfi forseta:

„Íþróttamót kalla almennt ekki á útgáfu skemmtanaleyfis af hálfu lögreglustjóra og því skortir lagaheimild til þess að krefjast þess að þeir sem standa fyrir íþróttamótum greiði kostnað við löggæslu sem af slíku mótshaldi skapast. Kalli viðburður, hvort svo sem um íþróttamót eða annað er að ræða, á útgáfu skemmtanaleyfis hefur löggjafinn hins vegar, samanber framangreint, heimilað lögreglustjóra að binda útgáfu slíks leyfis því skilyrði að löggæslukostnaður verði greiddur.“

Mótin sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson vitnaði til voru landsmót og unglingalandsmót á Sauðárkróki 2004. Það sem er einna merkilegast við þetta mál er kannski að allur sá hópur lögreglumanna sem þar var við gæslu á mótinu hafði nánast ekkert að gera. Þetta eru afskaplega friðsöm mót. Þar eru menn fyrst og fremst komnir til að reyna með sér í íþróttum. Þarna er jú einstaka skemmtun en þær eru búnar um miðnætti. Reynt var að leiða lögreglustjóra fyrir sjónir að óþarft væri að hafa stífa löggæslu á þessum mótum en það tókst ekki. Málið varð því allt, eins og kom fram áðan, hið leiðinlegasta.

Ég tel að þetta frumvarp sé afskaplega nauðsynlegt. Það er ekki hægt að gera hundruðum sjálfboðaliða sem halda landsmót eða unglingalandsmót, sérstaklega úti á landi, það nauðugum skylt að greiða löggæslukostnað sem er óþarfur. Það má vera að þetta mál á Sauðárkróki hafi meira snúist um pressu lögreglustjórans á staðnum gagnvart dómsmálaráðuneytinu varðandi kaup og kjör. Ekki skal ég um það segja. Hitt er skýrt, að löggæslan þar var með öllu óþörf. Það hefur sannast á öðrum unglingalandsmótum sem haldin eru um verslunarmannahelgi að þau mót snúast ekki um drykkju, slagsmál eða annað slíkt. Þetta eru fyrst og fremst íþrótta- og menningarmót.

Eins og ég segi þá hefur hæstv. ráðherra því miður ekki svarað mér skýrt fyrirspurn um löggæslukostnað á landsmótum og hvort hann hyggst beita sér fyrir að fella hann niður. Af þeim ástæðum skapast mikið óöryggi varðandi fjárhagsáætlanir sem menn gera varðandi næstu mót svo ég tali ekki um í því tilfelli þar sem hv. þingmaður heldur því fram að þetta gildi bara um landsbyggð. Við þessu þarf að fá skýr svör. Það er mjög einkennilegt að lagður er á íþrótta- og ungmennafélagshreyfingu sem er rekin af sjálfboðaliðum nokkurs konar skattur, jaðarskattur. Það er verið að refsa Ungmennafélagi Íslands fyrir að halda íþrótta- og menningarmót um verslunarmannahelgi. Þetta er ein mesta skrautfjöður ungmennafélags- og íþróttahreyfingarinnar og það væri virkilega slæmt, ef við tölum einungis um unglingalandsmótin, að skattur vegna löggæslukostnaðar yrði til þess að næstu mót á Laugum í Þingeyjarsýslu og á Höfn í Hornafirði legðust hreinlega af vegna þess að menn treystu sér ekki í löggæslukostnað og kannski ekki bara það að menn treysta sér ekki í hann heldur af því þeir eru ósáttir við hann. Hann er gjörsamlega óþarfur og í þessum tilfellum gætu lögreglumenn hreinlega setið heima hjá sér. Ef ég man rétt þá var einu sinni kallað í lögreglu á mótinu á Sauðárkróki til að opna bíl þar sem lyklar höfðu læst inni. Annað var það ekki. Það er kannski rétt að menn mæti á þessi mót og kynni sér þetta sjálfir.

Eins og ég sagði eru unglingalandsmótin haldin um verslunarmannahelgi. Það hefur verið gert núna í fimm ár og þau hafa mikið forvarnagildi. Á þessi mót mæta heilu fjölskyldurnar alls staðar að af landinu, 5.000–6.000 manns. Mótin stækka ár frá ári og vonandi, eða réttara sagt væntanlega, taka þau hreinlega við af því sem menn kalla fylleríshátíðir um verslunarmannahelgi. En það verður töluvert á valdi væntanlega allsherjarnefndar fljótlega og dómsmálaráðherra hvernig menn taka á þessu máli. Ef það á að halda áfram að krefjast löggæslukostnaðar á þessum mótum munu þau leggjast af. Þá ábyrgð bera þeir sem ekki eru tilbúnir að samþykkja þetta frumvarp og því miður gæti það gerst, eins og yfirleitt gerist á hinu háa þingi, að einungis þar sem þetta frumvarp kemur frá stjórnarandstöðuþingmanni þá verði því ekki hleypt í gegn.

Frú forseti. Hér hefur oft verið rætt um nauðsyn þess að bæði ríkisvald og sveitarstjórnir styðji við bakið á íþróttahreyfingunni. Það hefur gengið afskaplega brösuglega að fá hæstv. ráðherra íþróttamála til að taka virkilega myndarlega á því. Öllu verra er síðan ef menn ætla að bæta á hreyfinguna aukasköttum. Hver borgar þennan skatt? Það er þátttakandinn sjálfur. Hver er þátttakandi á unglingalandsmóti? Það eru börn og unglingar frá 11 ára til 18 ára.

Vel má vera að þetta frumvarp láti lítið yfir sér. En þeir sem best til þekkja vita að þetta skiptir afskaplega miklu máli. Það er í raun óskiljanlegt, eins og flutningsmaður hv. þingmaður Sigurjón Þórðarson minntist á hér áðan, að menn skuli ekki vera búnir að leysa þetta mál í dómsmálaráðuneytinu. Ég held að þetta sé fyrst og fremst innanhússmál þar, deilur nánast á milli ráðuneytis og lögreglustjóra víða um land. Af einhverjum ástæðum nýta menn sér þessi mót til að minna á þessar deilur.

Ef menn mundu mæta á þessi mót hreinlega, unglingalandsmótin, landsmótin, eða spyrja þá sem gerst til þekkja þá kæmust þeir að því hvað þessi mót skipta afskaplega miklu máli fyrir einstaklinginn, unglinginn, fyrir alla fjölskylduna. Að vísu er það ekki einu sinni á hreinu með næstu mót hvort það eigi að skilyrða mótshaldara til að greiða löggæslukostnað eða ekki. Það veltur í raun á duttlungum lögreglustjóra viðkomandi svæðis. Það fer ef til vill eftir því hvenær menn koma að máli við hann og hvernig liggur á honum hreinlega, hvort hann krefjist þess að menn greiði kostnað eða ekki.

Frú forseti. Það er bráðnauðsynlegt að frumvarpið fái góða umræðu hér í þinginu og góða afgreiðslu í allsherjarnefnd. Nú bíða ekki nokkrir einstaklingar, ekki nokkur hundruð heldur nokkur þúsund einstaklingar í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni um allt land eftir að fá svar við hvort í framtíðinni eigi að greiða löggæslukostnað af íþrótta- og ungmennafélagsmótum eða ekki.