132. löggjafarþing — 53. fundur,  26. jan. 2006.

Afbr.

[16:22]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Forseti. Við í Frjálslynda flokknum flytjum þessa tillögu vegna þess að hún er til bóta og hún bjargar þessu frumvarpi iðnaðarráðherra. Þess vegna styðjum við það. Við erum í stjórnmálum til að bæta verk iðnaðarráðherra. Það væri fáheyrt að vera á móti og ætla að tefja afgreiðslu málsins þegar verið er að lagfæra frumvörp hæstv. iðnaðarráðherra. Við styðjum þetta í Frjálslynda flokknum.