Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Hæstv. forseti. Um það var rætt fyrr í vikunni af hálfu hæstv. forseta að búast mætti við kvöldfundi í dag, fimmtudag. Það var nokkuð sem þurfti ekki að koma neinum á óvart þótt reyndar hafi komið upp nokkuð sérkennilegar aðstæður í dag, þegar hæstv. iðnaðarráðherra lýsti því yfir að hún hefði farið með rangt mál við fyrri umræðu þessa máls. Efnt var til fundar í iðnaðarnefnd og í kjölfarið fórum við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs þess á leit að hlé yrði gert á fundarhaldi fram yfir helgi. Ég vek athygli á þessum breyttu aðstæðum.
Nú er hins vegar langt liðið á kvöld. Það var aldrei talað um annað en að efnt yrði til kvöldfundar. Ekki var um það rætt að efnt yrði til næturfundar. Nú vil ég spyrja hæstv. forseta: Hve lengi hyggst hún halda þessu fundarhaldi áfram?