132. löggjafarþing — 53. fundur,  26. jan. 2006.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[22:55]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég ítreka ósk sem ég bar formlega fram fyrir hönd þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að hlé yrði gert á þessari umræðu fram yfir helgi. Ég vil halda því til haga ef stjórn þingsins ætlar að virða óskir okkar og þessar kröfur að vettugi.