Sala Hótel Sögu.
Frú forseti. Það var mjög myndarlegt hjá Pétri Ottesen og öðrum rausnarbændum að koma Reykvíkingum til hjálpar þegar þeir voru ekki menn til að byggja hér almennilegt hótel. Þetta hótel er angi af hinni gömlu sveitamenningu að það ber að taka vel á móti góðum gestum og þess vegna sé þessi bygging lýsandi tákn fyrir dugnað bænda, framsýni bænda og gestrisni.
Á hinn bóginn hygg ég að mikið vafamál sé hverjir eigi Mjólkursamsöluna og yfir höfuð mjólkursamlög bænda. Ef við horfum til sögunnar í þeim efnum og þess að þau fyrirtæki voru undanþegin eignarskatti og mig minnir tekjuskatti þar sem bændur voru löglegir eigendur þessara bygginga og þar sem sérstaklega var greitt til þeirra með jöfnunargjaldi til að standa undir fjárfestingunni. Ég held þess vegna að hv. þingmaður ætti heldur að snúa sér að Mjólkursamsölunni og þeim fyrirtækjum en leyfa Bændahöllinni að vera í friði.