132. löggjafarþing — 54. fundur,  30. jan. 2006.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[15:14]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Þetta frumvarp er í raun neyðarúrræði vegna þess að ekki hefur tekist að endurskoða þau lög sem eiga að gilda í framtíðinni um þessa hluti. Í fyrravor náðist samkomulag í iðnaðarnefnd um að flytja þetta litla frumvarp vegna þess að ekki náðist að afgreiða frumvarp um jarðrænar auðlindir sem þá lá fyrir og ekki heldur um vatnalög og reyndar fleiri frumvörp sem eru hluti af því ferli sem þarna er í gangi.

Markmið nefndarinnar var að hægt væri að leyfa rannsóknir á orkunýtingarmöguleikum í vatnsafli. Þetta snýst ekki um að leyfa rannsóknir í jarðhitanum því að samkvæmt þeim lögum sem þetta frumvarp á að bætast við eru möguleikar þar fyrir hendi. En við í nefndinni töldum að full ástæða væri til að hægt yrði að leyfa þessar rannsóknir og þess vegna var þetta frumvarp flutt. Síðan kemur upp þessi óskaplegi misskilningur sem hæstv. iðnaðarráðherra stóð fyrir í haust og niðurstaða liggur svo núna fyrir að breytingartillagan sem við bárum fram, Samfylkingin og aðrir stjórnarandstöðuþingmenn, hefur verið dregin til baka en önnur lögð fram sem gerir sama gagn. Við samfylkingarmenn getum því stutt þetta mál eins og við gerðum í upphafi þegar nefndin flutti það í vor og munum þess vegna samþykkja báðar breytingartillögurnar. Önnur gengur reyndar út á það að huga að framtíðinni, hvernig eigi að úthluta þessum leyfum til að nýta jarðhita og aðra orkunýtingarmöguleika, hvernig að því verður staðið. Hin gengur út á að það þrengja möguleika hæstv. ráðherra til að veita vilyrði fyrir orkunýtingu í framtíðinni. Það er því einungis bundið við hitaveitur, hvorki orkuvirkjanir í jarðhita né vatnsafli. Við höfum þess vegna náð því fram sem við vildum ná fram. Við komum til móts við stjórnarliða með þessum hætti í vor og við stöndum við það og teljum að hér sé niðurstaða sem hægt sé að una við en leggjum hins vegar áherslu á að það verði látið ganga þannig að hægt verði að klára þau lög sem verið er að undirbúa og þær reglur sem þurfa að verða til hvað það varðar hvernig eigi að velja þá aðila sem fá að nýta orkunýtingarmöguleikana í framtíðinni.

Ég legg áherslu á það að lokum, hæstv. forseti, að þar verði staðið í ístaðinu eftir að þetta mál hefur verið afgreitt hér.