132. löggjafarþing — 54. fundur,  30. jan. 2006.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[15:23]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Frú forseti. Það er ekki algengt að ég greiði atkvæði á móti því að mál verði látið ganga til 3. umr., þ.e. að mál fái þinglega meðferð. Ástæðan fyrir því að ég geri það nú er sú að allur málatilbúnaður hæstv. iðnaðarráðherra í kringum þetta mál hefur verið með ólíkindum. Sömuleiðis hefur framganga forseta Alþingis verið ámælisverð að mínu mati. Við tókumst hér harkalega á við 2. umr. um málið þar sem komið var í ljós að stór hluti af málatilbúnaði hæstv. ráðherra byggði á misskilningi hennar og það var óskað eftir því að 2. umr. hæfist að nýju. Við því var ekki orðið þannig að ég tel ekki að þetta mál hafi farið þinglega í gegnum þingið. Þess vegna segi ég nei, frú forseti, við því að málið gangi til 3. umr.