132. löggjafarþing — 54. fundur,  30. jan. 2006.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[15:25]
Hlusta

Hjálmar Árnason (F):

Frú forseti. Hv. þm. Jón Bjarnason mun hafa haldið rúmlega 5 klukkutíma ræðu í 2. umr. um þetta mál. Ég fer að átta mig á því núna eftir atkvæðaskýringar hans hvers vegna hann þurfti svo langan tíma. Annaðhvort hefur hv. þingmaður ekki skilið málið eða vísvitandi farið rangt með. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður fullyrti að hér væri verið að veita nýtingar- eða virkjunarleyfi með þessu máli. Hv. þingmaður veit að svo er ekki. Þess vegna er það yfirgnæfandi meiri hluti iðnaðarnefndar og þingheims sem stendur að því að vísa þessu máli áfram. Það lýtur einungis að því að úthluta rannsóknarleyfi. Og þá er nú fokið í flest skjól ef menn leggjast gegn rannsóknum til að geta tekið frekari ákvarðanir. Um það snýst þetta mál og ekkert annað, að veita rannsóknarheimldir. Punktur. Þess vegna er ástæða til að styðja málið.