Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Hæstv. forseti. Ég vil taka fram, eins og kom fram hjá hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur, að það heyrir til undantekninga að ég greiði atkvæði gegn því að mál fái þinglega meðferð. En eins og við lýstum við 2. umr. málsins teljum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að þetta mál sé ekki tilbúið til afgreiðslu.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð styður grunnrannsóknir heils hugar og vill að þær fari fram en þær rannsóknir sem hér er verið að leyfa, úthlutun á rannsóknarleyfum til vatnsaflsvirkjana — vatnsaflsrannsóknir snúast ekki um grunnrannsóknir sem slíkar, heldur undirbúning þess að halda áfram stóriðjustefnu hæstv. ríkisstjórnar, einskis annars. Hæstv. iðnaðarráðherra hefur með samþykkt þessa frumvarps heimild til að úthluta til hægri og vinstri þar til reglur verða settar um hvernig hún eigi, hæstv. ráðherra, að úthluta leyfunum.