Stóriðjuáform ríkisstjórnarinnar og loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Það er óvenjulegt að sjá hæstv. iðnaðarráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, koma hér í ræðustólinn og tala eins og þar fari valdalaus kona. Allt það sem er í gangi í stóriðjunni er á vegum einhverra annarra og ákvarðanirnar eru teknar af einhverjum öðrum, gott ef ekki hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
En, virðulegi forseti, auðvitað er það ekki þannig. Ríkisstjórn Íslands ræður yfir mikilvægum heimildum. Heimildinni til að menga. Við hljótum að spyrja: Hvar er umhverfisráðherra Íslands við þessa utandagskrárumræðu? Ríkisstjórnin ráðstafar leyfinu til að menga og það leyfi er eftirsóknarvert. Ráðherrann er spurður: Ætlar ríkisstjórnin að leyfa einu álveri að menga í viðbót eða tveimur álverum að menga á næstu sex árum? Það er grundvallarspurning fyrir þróun í atvinnu-, efnahags- og umhverfismálum á Íslandi og íslenska þjóðin á heimtingu á að ríkisstjórnin tali skýrt um það hvort eigi að leyfa einu eða tveimur stóriðjufyrirtækjum að menga meira hér á næstu sex árum. Það er grundvallaratriði. Auðvitað eru þetta ekki bara áform. Iðnaðarráðherra hæstv. getur ekki sagt mér að þetta séu bara áform. Hér slást álfyrirtækin um þessar síðustu heimildir til að menga. Auðvitað veit ráðherra að ákvörðunin um að ganga til einkaviðræðna við Alcan í Straumsvík er ákvörðun um að vilji þeir fá síðustu heimildirnar sem við eigum þá geti þeir fengið þær. Þá verði Norðurland bara að bíða og sjá hverju fram vindur í þessari þróun og eitthvað fram á næsta áratug. Því ég held að umræðan hér hafi sýnt að draumar ráðherrans um tvö eða þrjú álver í einu eigi engan hljómgrunn, ekki í neinum flokki, jafnvel ekki í hennar eigin flokki, (Forseti hringir.) því formaður þingflokks Framsóknarflokksins lýsti því síðast yfir í sjónvarpi í gær að hann teldi ekki skynsamlegt að ráðast (Forseti hringir.) í tvö verkefni í einu og þannig er spurningin orðin um stefnu Framsóknarflokksins en ekki Samfylkingarinnar í þessum málum, virðulegi forseti.