Stóriðjuáform ríkisstjórnarinnar og loftslagsmál.
Frú forseti. Mér finnst það í hæsta máta óviðeigandi af hæstv. iðnaðarráðherra að halda því hér fram í sinni ræðu að ég hneykslist svo af því ég sé svo fín að ég geti ekki hugsað mér að vinna í álveri. Hv. alþingismenn, sem kjörnir eru af þjóðinni til að gæta hagsmuna hennar, eiga ekki að tala svona hverjir um aðra í ræðustóli. Það er ósæmandi. Það er ósæmilegt og mér finnst eðlilegt að hæstv. iðnaðarráðherra biðjist velvirðingar á því að nota svona orðbragð um félaga sína hér á Alþingi eða að hæstv. forseti veiti hæstv. ráðherra tiltal. Mér finnst ég ekki hafa þurft að sitja undir svona ákúrum í þau tæp sjö ár sem ég hef setið hér á Alþingi og ég treysti því að hæstv. forseti sjái til þess að ég þurfi ekki að sitja undir frekari ákúrum af þessu tagi í ræðum kollega minna.