132. löggjafarþing — 55. fundur,  31. jan. 2006.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[14:53]
Hlusta

Frsm. minni hluta iðnn. (Jóhann Ársælsson) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við í Samfylkingunni höfum ekki breytt skoðun okkar á því að við teljum að það eigi að endurskoða þessi lög öll í samhengi og þá erum við að tala um þau sem eftir eru, þ.e. lögin um jarðrænar auðlindir, eða frumvarpið um þær, og vatnalögin sem liggja fyrir nefndinni. Vatnatilskipunin, sem umhverfisráðuneytið hefur nú lagafrumvarp í drögum vegna — eða okkur var gerð grein fyrir því í vetur leið að svo væri og ég reikna með að þannig sé það enn — allt þetta þarf að fylgjast að til að klára þetta mál. Og þegar við tókum þátt í að flytja það frumvarp sem hér er til umræðu í fyrravor þá var það á grundvelli þess að með því væri í raun og veru verið að opna leið og gefa svigrúm til þess að hægt yrði að klára endurskoðun þessara laga eða lagafrumvarpa sem ég taldi upp áðan — til að svo mætti verða gerðum við þetta samkomulag.

Mér finnst ástæðulaust að hafa svona óskaplega miklar áhyggjur af því þó að mögulegt verði að veita rannsóknarleyfi á grundvelli þeirra laga sem hér er verið að leggja til að verði sett vegna þess að þangað til tillögurnar koma frá nefndinni sem gert er ráð fyrir getur ráðherra ekki úthlutað rannsóknarleyfum nema það sé einungis einn umsækjandi um þau. Ef menn lesa bráðabirgðaákvæðið er augljóst að þannig liggur í málinu. Ráðherra getur ekki veitt rannsóknarleyfið nema einn umsækjandi sé til staðar.