132. löggjafarþing — 55. fundur,  31. jan. 2006.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[14:57]
Hlusta

Frsm. minni hluta iðnn. (Jóhann Ársælsson) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel að hér sé verið að mála skrattann á vegginn. Þetta snýst eingöngu um að það sé hægt að veita þessi rannsóknarleyfi og ég sé í sjálfu sér ekki nein sterk rök fyrir því að ekki megi rannsaka nýtingarmöguleika í vatnsafli á Íslandi. Hvað er það sem við höfum náð í gegn í sambandi við þetta mál? Við höfum náð því í gegn að það er ekki hægt heldur að veita rannsóknarleyfi með loforði um nýtingarleyfi hvað varðar jarðvarmann, sem var þó hægt áður en til þessa máls kom. Ég vil meina að við getum sæmilega við unað og í raun og veru sagt að við höfum fengið fullan sigur í málinu að því leyti til sem til stóð af okkar hendi.

Við vorum að leita leiða til að hægt yrði að ljúka endurskoðun þessara mála og menn hefðu til þess svigrúm og hefðu ekki afsökun fyrir því að þrengja málum í gegn sem voru óunnin eða illa unnin eins og við töldum. Niðurstaðan sem fékkst er þessi bráðabirgðaaðgerð á lögunum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.

Nú er vatnalagafrumvarpið til umfjöllunar í iðnaðarnefnd. Það hefur ekki verið hreyft við lagafrumvarpinu um jarðrænar auðlindir, það er ekki komið fram frumvarp úr umhverfisráðuneytinu vegna vatnatilskipunarinnar og við teljum þess vegna að það sé ástæða til þess að binda vonir við að þessi frumvörp öll þrjú verði að lokum unnin í samhengi og þá verði komnar fram tillögur, sem við höfum margkallað eftir, um það hvernig eigi að velja á milli þeirra sem eiga að fá að nýta auðlindirnar í framtíðinni og hvaða reglur eigi að gilda um þá auðlindanýtingu.