132. löggjafarþing — 55. fundur,  31. jan. 2006.

Tóbaksvarnir.

388. mál
[16:53]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Vissulega hef ég sem heilbrigðisráðherra velt þessu frumvarpi mikið fyrir mér. Eins og kom fram í framsöguræðu minni eru aðalrökin fyrir frumvarpinu þau að forðast óbeinar reykingar og stuðla að vinnuvernd á veitingastöðum. Það er það sem var fyrst og fremst ætlunin að ná fram með þessu frumvarpi, að gefa veitingahúsaeigendum hæfilegan aðlögunartíma í þessu sambandi og leggja fram þetta frumvarp í góðri samvinnu við þá að þessu leyti. Það voru aðalrökin fyrir utan hin venjulegu heilsufarsrök sem eru auðvitað undirstaða frumvarpsins.