132. löggjafarþing — 55. fundur,  31. jan. 2006.

Tóbaksvarnir.

388. mál
[18:17]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það með hv. ræðumanni Ástu Möller að vernda þarf þá fyrir tóbaksreyk sem vinna á veitingastöðum og þá sem þangað sækja sem reykja ekki og vilja ekki vera innan um tóbaksreyk. En að mínu mati felst í hinu fortakslausa banni sem hér er lagt fram mikið stjórnlyndi og áköf forsjárhyggja. Þar er of langt er gengið í einu skrefi þar sem ekki er lögð til leið sem nær sama marki, svo sem sænska leiðin þar sem áfram eru leyfð lokuð rými þar sem leyft er að reykja á skemmti- og veitingastöðum þar sem engin þjónusta er veitt o.s.frv. Það eru ýmsar leiðir að markmiðinu til að vernda þá sem ekki reykja fyrir tóbaksreyk, sem er sjálfsagt mál.

Fyrir þessu eru vissulega heilsufræðileg rök. En þó eru líklega ekki til jafnsterk heilsufræðileg rök fyrir neinu banni á nokkru vímuefni og áfengi sem rústar hundruðum fjölskyldna á Íslandi á hverju ári og kemur hundruðum manna, ef allt væri saman tekið, í gröfina á ári hverju, bara á Íslandi. Þannig mætti seilast langt út frá heilsufræðilegum rökum, sem vissulega eru til staðar í þessu máli. Það er sjálfsagt að vernda þá sem ekki reykja fyrir tóbaksreyk, að sjálfsögðu. Það þarf ekki að fara á bólakaf í sentímentalisma og upptalningu á látnu fólki til að sannfæra fólk um það.

En ég vildi spyrja hv. þingmann, sem kemur úr flokki hægri manna, hvort þetta sé ekki vandamál sem markaðurinn leysir sjálfur. Reyklausum veitingastöðum hefur fjölgað verulega upp á síðkastið. Þá sækir fjöldi fólks. Er það ekki markaðurinn sem leysir þetta sjálfur, hin ósýnlega hönd markaðarins sem leysir það ef veitingastaðir sem leyfa reykingar eða uppfylla ekki skilyrðin einfaldlega fá ekki kúnna?