Tóbaksvarnir.
Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu á að tryggja frelsi fólks til að vera í hreinu lofti. Um það held ég að flestir sem taka þátt í umræðunni í dag séu sammála. En það liggur fyrir að hægt er að ná fram vinnuverndarsjónarmiðum frumvarpsins með öðrum hætti og mildari.
Hvað fulltrúar Samtaka verslunar og þjónustu eða forustumenn hafa sagt í samtölum við hv. þingmann skiptir nákvæmlega engu máli. Hv. þingmaður sagði í upphafi ræðu sinnar að hún hefði stutt þetta mál í fyrra, algjörlega burtséð frá viðhorfum eða ályktunum þeirra samtaka. Alþingi Íslendinga mundi setja þessi lög sem koma inn á margt annað en vinnuvernd þótt hún sé eitt af markmiðum frumvarpsins, markmiðum sem hægt er að ná fram með öðrum hætti.
Málið vegur klárlega gróflega að friðhelgi einkalífsins og frelsi fólks til athafna, samskiptum frjálsra manna sín í millum. Það hlýtur að vera hægt að fara mildari leið án þess að ráðast að friðhelgi einkalífsins eins og hv. þingmaður mælir fyrir að gert verði.