Tóbaksvarnir.
Virðulegur forseti. Það liggur við að ég fari að vorkenna hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni. Hann veifar hér rannsókn og segir engar vísindalegar sannanir um tengsl á milli óbeinna reykinga og lungnakrabba, samkvæmt rannsókninni en ekki samkvæmt hans skoðun. Hann bendir á að svo sé samkvæmt rannsókninni.
Þá ætla ég að veifa frumvarpinu og segja á móti að samkvæmt aðilum, þ.e. samkvæmt skoðun Íslendinga, sé viðurkennt að vísindaleg gögn hafi með óyggjandi hætti sýnt að óbeinar reykingar valdi dauða, sjúkdómum og fötlun o.s.frv., þar með talið lungnakrabba. (Gripið fram í.)
Ég held að hv. þingmaður verði að kynna sér málin betur ef hann heldur virkilega boðlegt að koma, veifa rannsókn og segja: (SKK: Umfangsmestu rannsókn sem gerð hefur verið.) Rannsóknin segir að það séu engin tengsl á milli óbeinna reykinga og lungnakrabba. Það er ekki mín skoðun, segir hann, en þessi rannsókn segir það. (Gripið fram í: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir það.) Ég segi á móti: Langflestar rannsóknir sýna að þar eru mikil tengsl (Forseti hringir.) og þau eru hættuleg.