132. löggjafarþing — 55. fundur,  31. jan. 2006.

Tóbaksvarnir.

388. mál
[19:01]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi reykingar utan húss vil ég draga það sérstaklega fram að í 2. gr. stendur, með leyfi virðulegs forseta:

„Sama er um þjónustusvæði utan húss séu þau undir föstu eða færanlegu þaki og meira en að hálfu leyti umlukin veggjum eða sambærilegum mannvirkjum.“

Það mega því ekki vera meira en tveir veggir utan húss, ef mætti orða það þannig.

Varðandi vinnuverndina, jú, frumvarpið er vinnuverndarmál og það er hugsunin. Leiðin sem Svíarnir fóru með ákveðnum herbergjum var til að reyna að koma til móts við þau sjónarmið, sem ég heyri að hv. þingmaður hefur og reyndar fleiri hv. þingmenn, eins og Björgvin G. Sigurðsson hérna áðan. Af hverju ekki að hafa þessi herbergi til að leyfa fólki að reykja þar? Og við skulum þá tryggja að það sé engin þjónusta þar þannig að fáir starfsmenn þurfi að fara þar inn og lítil hætta sé því fyrir starfsmennina. Það er hugsunin. Þetta eru svo sem ágætisrök, alveg rétt, það eru ekki margir sem fara þar inn til þess að vinna, en einhverjir fara nú inn til að þrífa o.s.frv. Það má samt alveg færa rök fyrir því að það sé líka vinnuvernd að útiloka slík herbergi, það má alveg færa jafngóð rök fyrir því, það færu bara færri þar inn og í styttri tíma.

Ég skil rökin sem mjög margir veitingamenn bera fram að það væri langeðlilegast að hafa ekki þessi reykherbergi af því að þá væri þetta eins á milli veitingastaða og þeir þyrftu ekki að búa við það að þeir sem endilega vildu reykja færu á staðina þar sem þessi reykherbergi eru. Þetta væri meira jafnræði.