132. löggjafarþing — 55. fundur,  31. jan. 2006.

Tóbaksvarnir.

388. mál
[19:45]
Hlusta

Sæunn Stefánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Framkvæmdin hefur einmitt verið mikið rædd og þeir aðilar sem ber að fylgja lögunum eftir hafa rætt mikið við ráðuneytið. Við höfum farið yfir framkvæmdina með þeim og reynt hefur verið að gera bragarbót á henni. Ég ætla að vísa hér t.d. til vettvangskönnunar sem gerð var á 40 veitingastöðum í Reykjavík. Þar kom í ljós að á öllum nema einum vantaði meira eða minna upp á að settum skilyrðum væri fullnægt. Á flestum stöðum var að einhverju leyti farið eftir lögunum en ekki að öllu leyti. Á þrem stöðum voru reykingar meira að segja leyfðar í öllu þjónusturýminu þó að lögin kveði á um annað. Eftirlitsaðilarnir, sem eru sveitarfélögin, hafa rætt mikið við ráðuneytið og velt því upp að þeir geti ekki fylgt þessum lögum eftir vegna þess að hlutaðeigandi aðilar, veitingahúsin, hafa borið því við að það sé of flókið. Sumir staðir bjóði verr upp á en aðrir að skipta rýmunum í reyk- og reyklaus rými, og þar fyrir utan bendi ég á að ég vel vanalega að sitja í reyklausu rými en það kemur ekki í veg fyrir að maður finni tóbaksreykinn. Og ef við eigum að fjalla um vernd starfsmanna, sem er megintilgangur frumvarpsins, þá þarf sú vernd auðvitað að þjóna fólki jafnt á reyksvæðum sem reyklausum svæðum.