Endurbætur á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svarið sem var ánægjulegt þar sem svo virðist sem verið sé að koma að fullu til móts við óskir heimamanna á Ísafirði varðandi sjúkrahúsið þar, nauðsynlegar úrbætur vegna fyrirhugaðra breytinga á sjúkraflugi.
Ég vil láta það koma hér fram að það er mín eindregna skoðun að ekki sé á neitt hættandi varðandi sjúkraflug frá norðurfjörðum Vestfjarða. Reyndar ber að hafa í huga að suðurhluti Vestfjarða tengist þessu máli einnig. Sjúkraflugvélin á Ísafirði hefur einnig þjónað því svæði eftir því sem ég best veit. Meðan Þingeyrarflugvöllur er ekki tilbúinn til lendingar hvenær sem er sólarhringsins, eins og stefnt er að, tel ég að sjúkraflugvél þurfi að vera á Ísafirði. Lendingarskilyrði á Ísafirði eru þannig að ekki er hægt að lenda í myrkri eða þegar skuggsýnt er og það má heldur ekki vera mikið að veðri til þess að ekki sé hægt að lenda þar. En það er hins vegar hægt að taka upp þar við lélegri skilyrði.