132. löggjafarþing — 56. fundur,  1. feb. 2006.

Skattur á líkamsrækt.

421. mál
[15:48]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Mörður Árnason) (Sf):

Forseti. Ég hef unnið í fjármálaráðuneytinu og ég hefði satt að segja getað skrifað sjálfur það svar sem ráðherrann flutti vegna þess að ég sá að það mátti ljóst greina hvernig það svar varð til. Það varð til á einhverri af skrifstofum fjármálaráðuneytisins og fjármálaráðherra þreif það síðan með sér þegar hann hljóp niður á þing, eða réttara sagt þegar hann settist upp í bílinn hjá bílstjóra sínum sem er væntanlega með eitt af stæðunum hér fyrir framan. (Gripið fram í: Heldurðu að hann hafi ekkert hreyft sig?) Nei, ég held að ráðherrann hafi ekki hreyft sig mikið í þessu, hvorki í eiginlegum skilningi né óeiginlegum, því að það sem ég vonaðist til að kæmi út úr þessari svokölluðu rannsókn minni á skatti á líkamsrækt var það að fjármálaráðherra, sem hefur verið nokkuð hraustur maður og gengur með FH-merkið í barminum þar að auki, tæki sjálfstæða afstöðu til málsins en ekki þá sem vitað er að kemur út úr fjármálaráðuneytinu því það gerir auðvitað ekkert annað en benda á hvernig málin eru og hafi verið. Það kemur ekkert á óvart í því efni. Hins vegar stendur eftir og það er líka furðulegt að fjármálaráðuneytið, þar sem í minni tíð a.m.k. voru duglegir menn og spurðu ekki að því hvort hægt væri að vinna hlutina, svarar þremur af fjórum spurningum á þá leið: Nei, við vitum ekkert um það og kærum okkur ekkert um að vita það. Við kærum okkur ekkert um að vita hverjar skatttekjurnar eru. Við kærum okkur ekkert um að vita hver afslátturinn er.

Þriðju spurningunni, sem er um afstöðu ráðherrans sjálfs, ekki fjármálaráðuneytisins heldur ráðherrans sjálfs, svarar ráðherrann líka með tilbúnu svari frá einhverjum af fjölmörgum embættismönnum sínum sem sitja á stólum uppi í ráðuneyti og eru hreyfingarlausir nema þeir geti skroppið í líkamsræktaraðstöðu Seðlabankans, sem er væntanlega skattfrjáls, og hæstv. ráðherra Árni Mathiesen getur vonandi nýtt sér.

Ég lýsi miklum vonbrigðum með þetta mál og hyggst halda því áfram og bendi sérstaklega á þá mismunun sem þegar er fyrir hendi í kerfinu og á það misræmi sem, eins og ágætur hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir lýsti, er á milli þess sem gert er í lýðheilsu- og heilbrigðismálum annars vegar og þess sem hæstv. fjármálaráðherra leyfir sér hins vegar.