132. löggjafarþing — 58. fundur,  2. feb. 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Hlusta

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill láta þess getið að tvær utandagskrárumræður verða í dag. Hin fyrri hefst nú strax á eftir áður en gengið verður til dagskrár og er um samninginn um líffræðilegan fjölbreytileika. Málshefjandi er hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir. Hæstv. umhverfisráðherra verður til andsvara.

Hin síðari hefst klukkan 3 síðdegis og er um styttingu náms til stúdentsprófs. Málshefjandi er hv. þm. Björgvin. G. Sigurðsson. Hæstv. menntamálaráðherra verður til andsvara. Umræðurnar fara fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og standa í hálfa klukkustund hvor.