Samningurinn um líffræðilegan fjölbreytileika.
Frú forseti. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um samninginn um líffræðilega fjölbreytni er áfellisdómur yfir ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í umhverfismálum. Þessi samningur sem á rót sína í Ríó-ráðstefnunni um umhverfi og þróun frá 1992 er almennt álitinn einn af þýðingarmestu alþjóðasamningum á sviði umhverfisréttar og markaði þáttaskil í umhverfismálum. Þrátt fyrir það hafa íslensk stjórnvöld lítið sinnt þessum samningi og nánast hunsað hann að mestu leyti.
Ríkisendurskoðun bendir á að sérstaka athygli veki hve lítil áhersla virðist hafa verið lögð á náttúrufræðilegar rannsóknir sem ættu að vera forgangsverkefni svo að unnt sé að skrásetja líffræðilega fjölbreytni um allt land. Samfylkingin hefur flutt þingmál um skipulega skráningu á náttúrufari landsins þrjú þing í röð. Um það hafa komið mjög jákvæðar umsagnir en málið ávallt svæft.
Fyrstu árin eftir undirritun samningsins 1992–1994 var áhersla lögð á hann með nýjum lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands, lögum um villidýr og endurskoðun laga um náttúruvernd. Með tilkomu Framsóknarflokksins í ríkisstjórn datt botninn úr þessum áformum sem skýrast kom fram í meðferðinni á Náttúrufræðistofnun og áherslum á skipulega skrásetningu líffræðilegrar fjölbreytni landsins sem er undirstaða fyrir framkvæmd umhverfislöggjafar. Hann lagði niður náttúruverndarráð, aflagði lögbundin náttúruverndarþing og Náttúruvernd ríkisins sem var innlimuð í mengunarstofnun. Þessa hluti þarf að skoða í ljósi samningsins um líffræðilega fjölbreytni og þær skyldur sem hann leggur okkur á herðar.
Þetta mál allt er stærra í sniðum en svo að það sé Alþingi sæmandi að afgreiða það með einni stuttri umræðu utan dagskrár og láta þar við sitja. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd samningsins er það mikill áfellisdómur yfir íslenskum stjórnvöldum.
Ég fer fram á það hér með, virðulegi forseti, fyrir hönd Samfylkingarinnar og fulltrúa hennar í umhverfisnefnd að skýrslan verði tekin þar fyrir með formlegum hætti, gestir kallaðir til og kannaðar þær alvarlegu ávirðingar (Forseti hringir.) sem þar eru settar fram gegn framkvæmdarvaldinu og Alþingi. Að þeirri umfjöllun lokinni gefi nefndin þinginu skýrslu og hún verði tekin til umræðu á Alþingi.